Lögfræðingur - 01.01.1899, Blaðsíða 91
Yfirlit yfir l’.ggjöf í útlöndum.
1)1
ferðast um landið til að bjóða varning, að þeir kaupi sjer
vegabrjef, sem kostar 100 kr. fyrir hvern mánuð.
20) Tvö lög 27. júlí 1896 auka kosningarrjett til hrepps-
nefnda og bæjarstjórna. Hlutfallskosningar skal hafa, þeg-
ar nokkur hluti kjósenda óskar þess.
21) Lög 27. júlí 1896 um byggingar eru mjög nákvæm
lög um húsagerðir í öllum bæjum og jafnvel þorpum,
nema þremur stærstu bæjunum; þau tryggja það, að hús-
in verði vönduð, snotur og reglulega byggð. Meðal ann-
ars er ákveðið, að byggingarnefnd skuli hafa umsjón með
húsagjörðum. |>ar sem eigi er þegar til fyrirmyndarupp-
dráttur um allt skipulag bæjarins, þar á byggingarnefndin
tafarlaust að búa til slíkan uppdrátt.
22) Lög 22. maí 1897 um landbúnaðarháskóla Norvegs.
Tilgangur skólans er að veita vísindalega kennslu í alls
konar búfræði og efla vísindalegar rannsóknir. Útlending-
ar geta fengið inntöku á skólann.
23) Lög 5. júní 1897 kveða svo á, að atkvæðisbærir
menn, sem eru erlendis, þegar kosningar fara fram á kjör-
mönnum til stórþingsins, skuli hafa rjett til að greiða at-
kvæði, annaðhvort áður en þeir fara til útlanda eða þá í út-
löndum.
24) Lög 28. júní 1897 lögleiða í Finnmörku og norður-
hluta Norvegs landvarnarskyldu og herþjónustu, sem menn
þar hafa liingað til verið lausir við.
25) Lög 14. júlí 1897 um laun klerka og forsöngvara.
I Norvegi hafa þessi laun verið greidd af söfnuðunum á
líkan hátt, sem hjer á landi, og uppbætur brauða greidd-
ar úr ríkissjóði. þessu er ekki breytt, en tekjur, sem hafa
verið greiddar í landaurum, á að jafnaði að greiða í pen-
ingum. Prestar eru losaðir við innheimtuna, og er hún