Lögfræðingur - 01.01.1899, Blaðsíða 104
104
Yfirlit yfir löggjöf í útlönclum.
ild til að setja reglur um sölu á alls konar fæðutegundutn,
sem eiga að vera til manneldis, og fóðurtegundum fyrir
skepnur, svo og að hafa umsjón með slíkri sölu. Um kjöt
af slátruðum skepnum er sjerstaklega ákveðið, að ekki
megi selja það eða bjóða til sölu, fyrri en það er rann-
sakað af' ákveðnum mönnum og talið hæft til manneldis.
86) Lög 27. nóv. 1891 eru um beiningamenn og flæk-
inga. Beiningamenn, sem gjöra sjer beiningar að atvinnu,
og flækingar, sem leggjast í leti, ofdrykkju eða siðleysi,
sæta hegningarvinnu eptir ákvæðum dómara. Hegningar-
vinnan á venjulega að vara í minnst 2 ár og mest 7 ár.
Hegningarvinnan er ströng. Fangarnir eru neyddir til að
vinna, og, ef svo ber undir, má halda þeim í einveru.
Aðrir beiningamenn og flækingar eru settir inu í svo
kölluð frelsunarhús og sæta vægari meðferð. Loks eru
beiningamenn og flækingar yngri en 18 ára; þeir missa
einnig frelsi sitt, en eru settir inn í sjerstök hús, sem
einungis eru ætluð fyrir þá.
87) Með lögum 7. september 1893 hafa verið gjörðar
breytingar á stjórnarskránni, sem lengi hefur verið deilt
um. Var svo komið, að verkmenn um land allt ætluðu
að leggja niður vinnu; laust þá ótta miklum yfir lands-
menn. Verkmenn gengu til sátta, er lögin voru sett. Er
það einkennilegt við lögin, að kjósendur geta haft allt að
3 atkvæði hver. Eitt atkvæði hefur sá kjósandi, sem er
25 ára, hefur verið búsettur að minnsta kosti eitt ár í
sama bæjar- eða sveitarfjelagi, og er eigi að lögum úti-
lokaður frá kosningarrjetti. Tvö atkvæði groiðir sá kjós-
andi^sem er 25 ára og á fasteign 2000 franka (1440 kr.)
virði eða tiltekin verðbrjef, sem gefa 100 fr. (72 kr.) leigu
á ári, og ennfremur sá kjósandi, sem er kvongaður eða