Lögfræðingur - 01.01.1899, Blaðsíða 135
Eifðaábúð, sjálfsábúð og loiguábúð.
135
liöndum er jafnan lítils virði og lítils metin, og svo er
einmitt ástatt með allar þessar umbætur þínarn.')
Jeg get eigi sjeð annað, en að þessi orð sjeu að efni
alveg hagfræðislega rjett, og reynslan sannar þetta og um
allt land. Vönduð hús á jörðum eru talin æskileg og
sæmileg, en þau eru talin lítils virði. J>ví, sem einn
byggir upp, eyðir annar, og aldrei fáum vjer stigið hið
fyrsta spor í landbúnaði vorum, meðan vjer búum undir
þeim ábúðarlögum, sem nú gilda í þessu landi.
En hvað er þá til ráða?
þ>að er eigi nóg að rífa niður, það verður líka að
byggja upp. Mjer finnst það því vera skylda mín, að
reyna til að svara þessari spurningu, og þess vegna ætla
jeg að gjöra nokkrar tillögur um það, hvað sje til ráða.
En jeg vil taka það fram þegar í stað, að þau ráð,
sem jeg kem með, eru alls eigi stórfengleg. þ>au miða
eigi til þess að koma upp viðunandi jarðarhúsum á stutt-
um tíma, heldur að eins til þess, að fá þau, ef svo má
segja,, hægt og bítandi.
þ>að, sem hjer þarf að athuga, það er, hver ákvæði
eru lieppileg um nauðsynleg hús, er leiguliði gjörir á leigu-
jörð sinni, og um endurbætur hans á óhæfum jarðarhús-
um, um fyrningu húsa og eldsvoðaábyrgð, álag og úttekt-
ir, um hús á þjóðjörðum og hús á prestsetrum og kirkju-
jörðum.
1. í Danmörku er mikill fjöldi leiguliða kallaðir
»Fæstebönder«. í danskri tilskipun 8. júní 1787 um
landsdrottna og leiguliða (Fæstebönder) 5. gr. er svo á-
kveðið, að, ef þessir leiguliðar gjöri nauðsynlegar endur-
]) Auðfrieði. bls. 183.