Lögfræðingur - 01.01.1899, Blaðsíða 101
Yfirlit yfir löggjöf í utlöndum.
101
69) Lög 30.. júlí 1894 leyfa að setja bann gegn því, að
taka egg villifugla og eyðileggja þau.
70) Lög 30. júlí 1894 eru um samþykktir til verndunar
skelfiskum.
71) Lög 25. ágúst 1894, er gilda eingöngu fyrir írland,
miða til að veita leiguliða, er kaupir jörð, betri kjör.
72) Lög 6. júlí 1895 veita konum ýms rjettindi gagn-
vart mönnum sínum. Ef maður misþyrmir konu sinni eða
vanrækir að veita lienni og börnum þeirra framfærslu, þá
getur hún fengið úrskurð fyrir því, að hún sje eigi skyld
t.il að búa saman við hann, að hún ein megi hafa börn
þeirra hjá sjer, þangað til þau eru 16 ára, og að maður
hennar skuli greiða lienni framfærslueyri. Framfærslueyrir
þessi er lieimtaður á sama hátt, sem meðlag með óskil-
getnum hörnum.
73) Lög 6. júlí 1895 ákveða, að ósannar frásagnir um
hugarfar eða hegðun einhvers framboða til kosningar, skuli
sæta allt að 1800 kr. sektum, og missi kosningarrjettar
um 5 ár, ef frásagnirnar hafa verið bornar fram, til þess
að liafa áhrif á kosninguna. Kosning skal jafnan ógild, ef
ósannindin hafa haft áhrif á kosninguna, svo og ef sá,
sem kosinn er, eða erindreki hans, hefur sagt ósannindin,
stutt eða samþykkt útbreiðslu þeirra.
74) Lög 6. júlí 1895 breyta verksmiðjulögunum að ýmsu
leyfci. pau setja strangari skilyrði, en áður liafa verið, um
vinnu kvenna, barna og unglinga, setja strangar varúðar-
reglur um hættulegar vjelar, um ofmenntar eða óheil-
næmar vinnustofur o. s. frv.
75) Lög 31. mars 1896 fyrir Irland veita heimild til að
velja konur — giptar og ógiptar — í fátækrastjórnir.
76) Lög 14. ágúst 1896 veita heimild til þess, að banna