Lögfræðingur - 01.01.1899, Blaðsíða 98
98
Yfirlit yfir löggjöf í úUöndum.
að eiga nokkrar eignir. Drottningin skipar landsstjóra,
sem stjórnar með ráðgjöfum, er bera ábyrgð á stjórninni1).
56) Lög 25. júlí 1890 ákveða, að ekkjur þeirra manna,
sem ekki eiga arfgeng börn eða aðra arfgenga afkomend-
ur, skuli erfa allt, sem menn þeirra láta eptir sig, ef
bú þeirra er að skuldum frádregnum 9000 kr. (500 pd. sterl.)
virði eða minna. Ef það er meira virði, þá skal hún fyrst
taka 9000 kr. virði af óskiptu, fjelagsbúi og síðan erfa af
hinum bluta búsins, eins og ákveðið er í eldri lögunum
(o: helming búsins að undantekinni fasteign).
57) Lög 18. ágúst 1890 ákveða, að ef rangar upplýs-
ingar eru gefnar, þegar mönnum er boðið til að skrifa
sig fyrir hlutabrjefum eða verðbrjefum í hlutafjelögum eða
líkum fjelögum, þá skuli greiða skaðabætur fyrir tjón, er
leiðir af rangherminu, og hvílir sú skylda á stjórn fjelags-
ins eða öðrum hlutaðeigendum.
58) Lög 18. ágúst 1890 ákveða útvegun á heilnæmari
hýbýlum fyrir verkmenn. I bæjum, þar sem eru óheil-
næmir bæjarhlutar, jskal bæjarstjórn bafa skyldu eða heim-
ild til að taka bæjarhlutana lögnámi (eignarnámi) ogláta
rífa þá niður, en þá skal bæjarstjórnin sjá um að byggð
verði hús að nýju, þar sem fólkið í bæjarhlutunum getur
fengið nægilegt húsrúm. Ef einstök hús eru óheilnæm
sjálf, þá getur bæjarstjórn eða sveitarstjórn bannað
1) Vestur - Astralía er 44934 fcrhyrningsmílur. Arið 1890 voru
þar 46290 íbúar. Síðan hefur innflutningur aukist mjög mik-
ið, árið 1896 var hann langmestur (nálepa 36 þús. manns),
enda var tala landsmanna í árslok 1896 orðin 138 þús. Karl-
menn voru meir en helmingi fleiri (97 þús.), en kvennmenn
(41 þús.).