Eir - 01.07.1900, Blaðsíða 5
117
móttækilegri fyrir þennan sjúkdóm enn likami yngri manna, en
víst er það ekki. Starblinda kemur næstum eingöngu fyrir
á gamalmennum og stendur eflaust í sambandi við eðlilega
afturför og rýrnun líkamans, sem vér nú munum tala um.
Ellihrörnun getur verið eðlileg og nauðsynleg afleiðing
af líkamseðli voru, en hún getur líka komið af þeim skaðlogu
áhrifum, sem líkaminn hefir orðið fyrir á langri lífsleið; mjög
mikill munur er á því, hve fljótt menn eldast og vanalega
kemur ellihrörnunin því fyr, sem maðurinn hefir búið við
óhollari lífsskilyrði.
Vér segjiun á voru máli, að gamlir verði ellidauðir,
þegar þeir ekki deyja af neinum sérstökum sjúkdómi eða slys-
um. Þetta er og alveg rét.t. Dauðann leiðir fyr eða síðar
með óhjákvæmilegri nauðsyn af ellihrörnuninni; mjög er mik-
ill munur á hvað lengi þotta gotur dregist. Menn vita ároiðan-
leg dæmi þess, að'menn hafa orðið 150 ára gamlir eða jafn-
vel oldri. Vanalega verða þó þeir, sem verða ollidauðir, ekki
eldri enn áttræðir eða níiæðir og menn geta jafnvel dáið úr
elli milli sextugs og sjötugs. Þessi munur getur stafað af
meðfæddu líkamseðli; sumir eru „lífseigari" en aðrir og merki-
legt ei', að menn, sem virðast vera sterkbygðir og hraustir,
eru ekki alt af lifseigari enn aðrir; líka getur þetta komið af
mismunandi lífsskilyrðum og af áhrifum þeiin, sem líkaminn
hefir orðið fyrir um æfina. íJað er vist, að meðaialdur sá,
sem menn ná, verður hærri hjá þeim, sem eiga við betri kjör
að búa og lifa eftir skynsamlegum heilbrigðisreglum, og er
ljóst, að þetta hlýtur að leiða til þess, að fleiri menn ná há-
um aldri eftir því sem þessu fer fram og það verður almenn-
ara, og menn gætu jafnvel spurt, hvort það væri ómögulegt,
að sá tími kæmi einhverntíma, að lifsskilyrðin yrðu svo góð
og fullkomin í alla staði, að menn gætu haldið áfram að lifa
endalaust, ef ekki vildi neitt slys til, og komist þannig hjá
dauðanum. Því heldur er ástæða til að spyrja um þetta, sem
menn verða ekki ellidauðir nema einhvorjir líkamspartar séu
orðnir bilaðir og þessi bilun verði tilefni til dauðans. Enginn
deyr úr elli, ef líffæri hans eru al-heilbrigð. Dauðinn kemur