Eir - 01.07.1900, Page 27
139
Gæði mjólkur fara mest eftir þvi hve mikil fita er
i henni, því það er verðmætasti hluti hennar, en það fer bæði
eftir eðlisfari skepna og meðferð <á þeim, bæði að því er snertir
fóður og annan aðbúnað. En auðvitað getur mjólk, som ann-
ars heíir heppilega samsetningu skemst við óþrifnað og við
sjúkdóma í mjólkurskepnunum. Það er t. d. enganvegin fát.ítt
að berklabakteriur komist í mjólkina, þar sem nautgripir hafa
þá veiki. Hvernig ástatt sé með það hér á landi vita menn,
enn sem komið er, lítið sem ekkert. Siðast liðið sumar gorði
dýralæknirinn rannsóknir í þá átt í einu héraði og fann veik-
ina óvíða, en valt er að byggja ofmikið á þvi, meðan rann-
sóknir hafa ekki farið fram víðar. Þessar bakteríur drepast ef
mjólkin er soðin, og með því ungbörnum er miklu hættara að
smittast af þessari veiki gegnum meltingarfærin on fullorðnum,
er æfinlega rétt að gefa þeim okki óflóaða mjólk. Annars er
mjólk ágætt viðurværi fyrir hverskonar sóttkveikjur. Er því
mjög hætt við að þær geti tfmgast, í mjólk á bæjum þar sem
næmir sjúkdómar ganga, t. d. taugaveiki og skarlatssótt, og
er margroynt erlendis að menn hafa smittast af mjólkinni. En
það er sama að segja um þessar sóttkveikjur og berklabaktorí-
una, að þær drepast ef mjólkin er soðin, og með því einu
móti má takast að gera mjólkina skaðlausa þegar svo
stendur á.
En það eru ekki sóttkveikjurnar einar, sem þrífast vel í
mjólk. Aðrar bakteríur gera það ekki siður, en fyrst og fremst
ein tegund þeirra, sem hefir þau áhrif að mjólkin súrnar af
því að sykurinn í mjólkinni ummyndast í mjólkursýru. Ég
geri ráð fyrir að mörgum húsmæðrum sé kunnugt um, hve
erfitt gotur verið að varna súr að komast í mjólk i hlýju sum-
arveði i, en að þær viti jafnframt að ef nokkuð stoðar til þess
að koma i veg fyiir það, þá er það þrifnaður. I’að er hvim-
leitt ef mjólkin súrnar og veiður að gelli þegar hún er hituð,
en fullorðnum er hún samt ekki sérlega óholl. Öðru máli er
að gegna með ungbörn. Pau geta íengið banvæna magaveiki
af súrri mjólk, og það er þvi einkar áriðandi að nota svo ein-
föld mjólkuráböid sem unt. er lianda börnum. Peim mun ein-