Eir - 01.07.1900, Page 68

Eir - 01.07.1900, Page 68
180 4) Ilafa skal í herberginu matarílát handa sjúkling og hjúkrunarkonu (eða hjúkrunarmanni), vatnsfötu og skolpfötu. Allur matur er réttur inn um dyrnar; hjúkrunarkona tekur við honum í sín ílát, úr ílátum þoss, er inatinn færir, án þess að ílátin komi hvert við annað; liún varast að snerta á því, sem úti ei', og matselja varast að snerta á því, sem inni er. Vatn til drykkjar og þvotta er einnig rétt inn um dyr; vatns- beri hellir úr sinni fötu i vatnsfötu hjúkrunarkonunnar. Hjúkr- unarkonan þvær sjálf matarílát sín og sjúklingsins; hún hellir öllu skolpi, saurindum og hrákum í skolpfötu sína og heflr lok yfir henni. Tvisvar á dag eða oftar er þessi fata losuð á þann hátt, að komið er að dyrunum með aðra skolpfötu, sem til þess er höfð og einkis annars, og hellir hjúkrunarkonan úr sinni fötu í úti-fötuna. Er skolpinu helt í forina, eða á annan afvikinn stað fjarri húsvegg og vatnsbóli. |Kf unt er, skal hjúkrunarkonan hafa inni lijá sér klórkalk í'cinhverju iláti með vel feldu loki, og láta klórkalk í skolpfötuna, sem svarar 3—4 matskeiðum í hvern pott af skolpinu]. 5) Hjúkrunarkona safnar öllum óhreinum fatnaði af sér og sjúkliognum í poka, en lætur rétta sér hreinan fatnað inn um dyrnar. Ef ekki er til skiftanna og verður að þvo hinn óhreina fatnað, þá skal setja pott á hlóðir liálf-fullau af vatni, láta koma upp suðu, snara niður í pottinn pokanum með öllum óhreina fatnaðinum og sjóða hann 20 -30 mínútur; síðan eru fötin þvegin á vanalegan hátt. Suðan drepur allar sóttkveikjur og er því potturinn jafn-góður eftir sem áður og soðnu fötin hættulaus. Sá er pokann ber fram úr sóttarherberginu og lætur hann í pottinn, skal gæta þess vandlega, að láta pokann hvergi koma við sig og þvo sér rækilega um hendurnar strax á eftir úr heitu vatni og grænsápu. Þá getur hann verið óhræddur. Þossi sóttkvíun í sérstöku herbergi, er svo mikils verð, að með henni má nær því ávalt koma í veg fyrir, að næmur sjúkdómur taki einn af öðrum á heimilinu, og það þó um mjög næmar sóttir sé að fjalla (t. d. mislinga, skarlatssótt, barnaveiki). Það má vera, að mörgum virðist þetta vera mikil fyrir-

x

Eir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eir
https://timarit.is/publication/36

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.