Eir - 01.07.1900, Page 76
188
sængurfatnað, handklæði og svamp. Sá, er snertir þessa hluti,
verður strax að sápuþvo hendur sínar vandlega. Annars setur
hann sóttkveikjuna af höndum sér á föt sin oða á aðra eða
jafnvel beint í augu sér, ef hann í ógáti nuddar þau með
fingrunum.
Til er sjúkdómur, sem stundum kemur í augu nýfæddra
barna og er af alt annari rót runninn en þessi veiki, er oítast
hættulaus og batnar fyr, en þó eru sjúkdómar þessir einatt
svo líkir, að þeir verða ekki aðgreindir nema með góðri
smásjá.
Alla augnveiki nýfæddra barna, sem hefir í för með sér
graftarútferð. er réttast að álita hættulega fyrir sjón þeirra og
vitja tafarlaust læknis, þegar vart verður veikinnar. Því næst
verður að þvo augun, jafnóðum og gröftur set.st í þau, og þeg-
ar hann er mikill verður að þvo hann burtu með fjórðungs
eða hálfrar stundar millibUi dag og nótt. Það væri óhappa-
leg miskunnsemi að hiifast við að vekja barnið, enda vaknar
það ekki ætíð, ef augun fru þvegin með lipurð.
Til að þvo augun með þarf að hafa hreina sjúkrabaðmull
og bórvatn eða þá að minsta kosti tárhreint, soðið, voigt vatn.
Nokkru af vatninu er helt í nýþvegna skál, er að eins sé
notuð til þessa meðan augnveikin helzt við, en síðan mjög
vandlega þvegin eða helzt soðin i íjórðung stundar áður en hún
er notuð til annars. Ofan í vatnið eru lát.nar nokkiar baðm-
ullarviskir á stærð við sveskju, og pappírsblað er lagt við hliðina
á skálinni. Hjúkrunarkonan, sem á að þvo augu barnsins,
leggur þá handklæði undir bert. höfuð þess, leggur svo tvo
fingur vinstri handar sinn á livort 'augnalok og ekki nær
hvörmunum en svo, að hún þrýsti ekki á sjálft augað. Með
þessum fingruin ýtir hún augnalokunum sundur, kreistir dálítið
af vatni úr einni baðmullarviskinni inn í augað, sleppir svo
augnalokunum sainau aftur og þurkar með baðmullinni gröft-
inn af augnalokunum. Oft verður að endurtaka þetta nokkr-
um sinnum til þess að allur gröfturinn náist burt. Augað má
alls ekki snei'ta með baðmullinni og ekki heldur augnalokin að
innanverðu. Baðmullarvisk, sem gröftur er kominn á, má ekki