Eir - 01.07.1900, Síða 51
163
hafl heyrt þess getið, að allar sknrðlækningar eru nú miklu
hætturainni enn áður, vegna þess, að nú kunna læknar ráð lil
þess, að varna sóttkveikjum að komast inn i sárin. Framför-
in er fólgin í meiri þrifnaði, enn áður gerðist. Nú er aðferðin
sú, ef eitthvað kveður að, að læknirínn hreinsar verkfæri sín
(sýður þau), þvær nákvæmlega hendur sínar og húð sjúklings-
ins, þar sem skera á, úr heitu sápuvatni, spiiítus og karból-
vatni, býr um sár manna með líni og baðmull, en hefir áður
drepið í þessum uinbúðum allar lifandi smáverur (með suðu
eða á annan hátt). Læknirinn getur þannig varnað þvi, að
sóttkveikjur komist í sár þau, sem hann sker, og varnarað-
ferðin er — þrifnaður. Og hún bjargar daglega lifi margra
manna. En skurðlækningar hafa tíðkast frá alda öðli og fjöldi
manna lifði þær af - annars hefðu þær aldrei tíðkast. Oþrifn-
aður á heimilum manna. hefir tíðkast frá alda öðli og fjölda
margir lifa hann af, annars hefði hann ekki tiðkast. En ef
sóttkvoikjur komast inn á sóðaheimilin, þá er sem þær komi
í opið sár, þá er friðurinn úti. Ef það er taugaveikissóttkvoikja,
þá kemst hún oftast í flesta eða alla heimilismenn; ef það er
berklasóttkveikja, þá fer sjafdan hjá því, að fyrsti sjúkl-
ingurinn beri veikina á aðra. Holdsveikin berst af einum
á annan — á sóðaheimilum. Á þrifnaðar heimilum, þar sem
sjúklingarnir eru vel hirtir og hafðir sér, ber það miklu sjaldn-
ar við, að sú veiki smitti; það hefir frægasti holdsvoikisfækn-
irinn nú á dögum sannað með fullurn rökum.
Meinið er að inenn hafa ekki veitt þessu eftirtekt, ekki
alþýðan; hún hefir ekki áttað sig á því, að það er sóðaskap-
urinn, alls konar óþrifnaður innanhúss og utan, sem olur
farsóttimar í landinu, og fleygir áfram útlendum farsóttum, þá
er þær ber að höndum.
Menn eru hræddir við hinn holdsveika mann, við hina
brjóstveiku aumingja; menn eru forviða á því, að læknarnir
skuli geta vitjað hinna sjúku dag eftir dag og ár eftir ár, án
þess að það komi mjög oft fyrir að þeir smittist af
sjúklingunum. Menn halda að læknnarir kunni einhvern leyni-