Eir - 01.07.1900, Side 66
178
konar varnir í viðlögum, er gilda þangað til læknir
kemur og segir nánar fyrir.
Hvað á þá að gera?
Því miður eru engar skýrslur til um húsakynni manna
hér á landi, en naumast er of mikið tiltekið þó að gert sé ráð
fyrir, að meira en helmingur allra heimila hafi ekki nema
eitt einasta íbúðarherbergi. Þá er að gæta þess er nú skal ■
greina.
Sjúklingur sóttkvíaður í rúmi sínu.
1) Enginn má sofa hjá sjúklingnum eða sitja á rúmi
hans, og ekki má hann fara í annara manna rúm meðan búið
er um hann, heldur verður að styðja hann á stól.
2) Hafa skal sérstök matarílát handa honum og þvo þau
sér úr sjóðheitu vatni.
3) Hafa skal sérstakt næturgagn handa honum, og bolia eða
leirkrukku með ögn af vatni í slcal hann hafa til að hrækja
i. Hann skal varast. að hrækja á gólf eða i klúta — það á
enginn maður að gera, hvorki sjúkur né heilbrigður. Iíella
skal út úr næturgagni og hrákaboila einu sinni á dag, eða oft-
ar, í forina, eða á annan afvikin stað fjavri biísvegg og vatns-
bóli, og þá um leið skola þessi ílát úr sjóðiieitu vatni. [Ef
klórkalk er fyrir hendi, þá skal láta það í næturgagnið, 2 mat-
skeiðgr i hvern J/2 pott, eða sem þvi svarar. Þetta er eink-
um mikils vert, ef um taugaveiki er að ræða (sbr. bls. 97)].
4) Ef hann hefir fataskifti, eða skift er um föt í rúmi
hans, þá skal láta öll þau föt, bæði rúmfatnað og íverufatn-
að, er hann hefir notað, í poka, binda fyrir og geyma á af-
viknum stað, þar til er sótthreinsun verður viðkomið.
5) Best er að ein og sama manneskja annist sjúklinginn
að öllu leyti og skal hún gæta þess, að bretta upp ermar á
fötum sínum í hvert sinn er hún hagræðir sjúklingnum eða
býr um hann og þvo sér vandlega á eftir um hendur og hand-
leggi úr heitu sápuvatni. Hún skal og þvo hendur sínar í hvert
sinn er hún hefir handleikið matarílát sjúklingsins, hreinsað
næturgagn hans, eða yfirleitt snert á nokkru því, er sjúkling-