Eir - 01.07.1900, Síða 52
164
galdur til þess að verja sjálfa sig og vilji ekki kenna öðrnm
út í frá — til þess að missa ekki atvinnuna, segja sumir!!
Varnarráð læknanna er þrifnaður, ekkert annað. Það er
allur galdurinn.
„Meiri mentun!" er hrópað i öllum liéruðum landsins, og
sífelt eru aukin útgjöldin til þess að menta uppvaxandi kyn-
slóð. Það er rýr mentun, að troða í unglingana þuru ágripi af
sögu og landafræði og einhverju orðahrafli úr útlendum málum;
það er góð montun, ef unglingunum er kent að hugsa rett og
álykta, ef vakin er hjá þeim næm tiifinning fyrir réttu og
röngu, fyrir því sem fagurt er og háleitt, ef þeim or innrætt
hatur á iðjuleysi og óreglu, en ást á allri vinnu, engu síður
líkamlegri en andlegri, og þó er þetta ónóg mentun, ef þvi er
gleymt, að kenna þeim að gæta heilsu sinnar, venja þá á þrifn-
að og reglusemi. Góð heilbrigði er skilyrði fyiir vellíðan
einstaklingsins og þrifurn þjóðarinnar, skilyrði, sein aldrei verð-
ur yflr stokkið.
Pað hefnir sín að vanrækja þetta síðaslnefnda uppeldis-
atriði, hefuir sin á heiísu manna og lifi.
Og sárasta hefndin fyrir óþrifnað og hirðuleysi um heils-
una er og verður ætið hin sama: útbreiðsla næinra sjúk-
dóma.
2. Ýiniskonav váðstai'anir gcgn næinuiu sóttuin.
Hver þjóð gerir greinnrmun á þeim farsóttum, sem að
staðaldri gera vart við sig, og hinum, sem ekki eiga heiina í
landinu, en koma, eða geta komið við og við annarsstaðar að,
úr öðrum löndum. Heimasóttir (endemiskar sóttir) eru þær
sóttir nefndar, sem að staðaldri ala aldur sinn i landi hverju,
en hinar aðkomusóttir eða útlendar sóttir, sein heima eiga í
öðrum löndum og berast þaðan. Skarlatssótt og mislingar eru
aðkomusóttir hér á landi, en heiinasóttir víðast hvar annars-
staðar í Norðurálfunni. Holdsveiki er heimasótt hér á landi,
en það er hún ekki í flestuin nágranna-löndunum.
Allar siðaðar þjóðir láta sér ant um að varna því, að út-
lendar sóttir berist til þeirra.