Eir - 01.07.1900, Page 34

Eir - 01.07.1900, Page 34
140 meira af rúgmjöli en af rúgi. Tvennir eru tímarnir. 1843 var flutt inn 5 sinnum meira af rúgi en rúgmjöli. Menn gleypa við þvi að kaupa útlent mjöl af því það er engu dýr- ara — stunduin ódýrara — en ómalaður kornmatur, og þykj- ast þannig geta sparað sór mölunarkostnað. En halda menn þá að það só af föðurlegii umhyggju fyrir íslendingum að út- lendingar selja þeim svo ódýrt mjöl? !’að er óþarfi að gera ráð fyrir þvi. Hitt er auðvitað sennilegra að mjölið sem hing- að flyzt sé vont.1 Áður hefir það tíðkast að bændur möluðu sjálfir korn sitt i heimahúsum i handkvömum. Ef monn þykjast ekki framar hafa vinnuafl nægilegt til þess, — og það má vel vera að svo sé — þá er nóg straumvat.n á íslandi og nógur vindur til að hreifa vatns- eða vindmylnur, og það mundi sýna sig, ef menn tækju aftur upp þann sið að mala sjálfir korn, eða láta rnala það í landinu, að menn fengju betri mat, og að tilkostnaðurinn inni sig upp. Hrísgrjón þarf ekki að mala, því að hýðið er tekið af þeim áður en þau koma i verzlunina og við suðuna verða þau svo mjúk að tungan getur marið þau sundur. Baunir þarf ekki heldur að mala, en hysmi þeirra er að kalla má ómeltandi og að engu nýtt. Það er því miklu betra að kaupa klofnar baunir, en þær eru hýðislausar. Annais veit alþýða manna ógn vel, að baunir eru saðsamur en þungmeltur matur, endaeruíþeim viðlíka mikil eggjahvítuefni og í kjöti, auk allra kolvetnanna, og skara þær því að næringargildi langt fram úr öllum kornmat öðrum. Pað er rétt að geta þess hór, að þegar vatniðerhart (kalkblatidið), soðna baunir mjög seint og illa, en það má bæta úr því með því að láta dálítið af sóda saman við suðu- vatnið. Kornmatur þarf æfinlega að undirbúást, svo hann verði mannamatur, og fer það fram á ýmsan hátt. Ymist ermjöl- ið eða fræin lieil eða grófmulin (“grjón“) soðin með vatni eða mjólk, og þannig breytt til á ýmsan hátt. Kæringargildi þess- ara rótta fer auðvitað eftir því hve mikið vatn er i þoim, en 1) Um skemdir í mjöli og korni geta raenn lesið í bæklingi eftir G. Björnsson Um matvæli og munaðarvöru, Rvik 1895.

x

Eir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eir
https://timarit.is/publication/36

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.