Eir - 01.07.1900, Side 40

Eir - 01.07.1900, Side 40
152 ingum síður í geð en hinar sem eru fastar í sér. Aldrei eru kartöflur verulega auðmeltar og einkum verður að forðast að láta börn borða mikið af þeim. Kartöflur geta sýkst á ýmsan hátt. Á síðari árum heflr hér á landi brytt á þeirri veiki, sem kartöflusveppurinn veldur. Hann er annars ekki heilsuspillandi fyrir menn, en veldur stór- miklu fjártjóni. Aðrir rótarávextir, rófur, næpur o. s. frv. hafa minna næringargildi en kartöflur, á að gizka helmingi minna, en eru að sama skapi vatnsauðugri (sjá t.öfluna), en þó er verðmun- urinn ekki að sama skapi. Þeim hættir enn fremur til að tréna og verður sá hluti þoirra gersamlega ómeltandi. Kálmeti heflr enn minna næringargildi, en engu að síður er það hentugur matur til uppfyllingar, tilbreytingar og smekk- bætis, enda lítill tilkostnaður við það. Hér heflr verið farið fljótt yflr sögu, en drepið stuttlega á hinar helstu fæðutegundir, sem menn leggja sér til mn.nns á landi hér. Ýmsu heflr verið slept., því eins og sagt heflr verið er mörg matarholan hér á landi, og margt fleira mætti boi ða, og heflr enda verið gert. Það er t. d. engin efi á því, að skelfiskar margskonar, einkum krældingur, er ljúffeng fæða, og mikið til af honum viða á landi hér, en lítt notaður, enda er sá galli á, að stundum myndast eitur í kræklingi, sem get- ur verið svo megnt, að það verði mönnum að bana; það er ekki mögulegt að vita með vissu hvort eitur sé í honum, eða sjá það á honum, en mest hætta er á því ef hann hefir lifað í stöðnum og óhreinum sjó. Það er ekki heldur efl á því að ætisveppir vaxa hér og sumstaðar að svo miklum mun, að það gæti dregið dá- lítið um þá fæðu, en erfltt er að þekkja æta frá eitruðum, og er þvi ekki hættulaust að neyta þeirra. Að minsta kosti er óvarlegt að borða þá hráa. Það er vissulega miklu skynsam- legra að leggja rækt á þá jurtafæðu (kartöflur og rófur) sem

x

Eir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eir
https://timarit.is/publication/36

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.