Eir - 01.07.1900, Síða 70

Eir - 01.07.1900, Síða 70
182 2) Heimamenn skulu varast að koma á önnur heimili. Ef þess gerist brýn þörf, að einhver fari á næsta bæ eða að næsta húsi, til þess að leita heimilinu einhverrar hjálpar, þá skal hann ekki ganga inn, heldur berja og bíða þess, að gengið sé til dyra; hann skal varpa kveðju á menn, en ekki heilsa með kossi eða handabandi, og lúka erindi sínu úti og engar góðgerðir þiggja og engan lilut skilja eftir af farangri sínum, hvorki bréf né böggla né neitt það, er nöfnum tjáir að nefna. 3) Húsráðandi á sóttarheimilinu verður að leita hjálpar hjá nágrönnum sínum nm aila aðflutninga að heimilinu, læknis- vitjan og aðrar ferðir, er hann þarf að láta fara. Er það ná- grönnum hans sjáifum 1 hag, að láta þessa hjálp í té. [Ef yfiivöld hafa sett varnir gegn sjúkdóminum, þá annast þau alt þetta, skipa mann til þess að vitja um heimilið og draga heim ailar nauðsynjarj. 4) Nú hefir einhver tekið að sér að annast aðflutninga að sóttarlieimili, og skal hann gæta alira þeirra fyrirmæla, sem að framan eru greind, (1.). Hann skal varast að fara inn í bæinn, ekki þiggja góðgerðir og ekki dvelja næturlangt, ef annars er kostur. Hann skal engan hlut hafa með sér af sóttarheimilinu, sem þar hefir verið í húsum iuni, eða heima- menn hafa liandleikið. Starfsemi hans er hætt.ulaus, ef hann gætir sín.1 1 Síðasti kaíli þessarar ritgerðar — um sótthreinsun (sóttkveykju- dráp) — getur ekki komið sökum rúinleysis. Hin lögskipuðu sótthreins- unarfyrirmœli eru prentuð í Eir 1. árg., bls. 72—76; þau eru fremur ætluð læknum en alþýðu manna; hafði ég liugsað mér að skrifa ýtar- legar um sótthreinsunaraðferðirnar, svo að öll alþýða gæti skilið þær og fært sér þær í nyt. -o-o->—

x

Eir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eir
https://timarit.is/publication/36

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.