Eir - 01.07.1900, Side 74

Eir - 01.07.1900, Side 74
186 sjúkdóraar, því að saraa bakteríutegund er orsðk beggja; ekki er þó alt, sem alment er kallað kirtlaveiki, af þessari rót runnið. Til þess að forða bðrnum frá kirtlaveikinni, verður að láta þau breyta eftir boðum heilsufræðinnar, svo sem með góðu og hentugu viðurværi, hreinlæti og nægri hreiflngu úti við. Pess ber og að gæta, að börnin hafi ekki slæmar hægðir, og verður að leita læknis við því í tíma. Mjög oft er brotið á móti þessu, og kemur það niður á börnunum; þau missa matarlyst og hafa ekki full not fæðunnar. Annars oru varúðarreglur gegn kirtlaveikinni hinar sömu sem gegn berklaveikinni, með því að orsök þeirra beggja er iiin sama; nægir því að vísa til ritgerðar um berklasótt á bls. 141 í 1. árg. „Eirar". Ef börn hafa fengið ský á bæði augun og sjónin skemst, verður að hafa gát á, að þau ofþreyti ekki augun á ofmiklum bóklestri eða smágjörri handavinnu. 2. Augnabólga nýfæddra barna (Oplithalmia neonatorum gonorrhoica). Augnabólga nýfæddra bama er sjúkdómur, afarhættulegur fyrir sjónina. Hann er af útlendu bergi brotinn, fluttur hingað til bæjarins fyrir fáum árum, og heflr nú tekið sér bólfestu hér fyrir fult og alt; engin líkindi oru til, að honum verði útrýmt. Fyrstu 2 dvalarár mín hér i bænum (’94 og ’95) várð ég ekki sjúkdómsins var; hefði hann þó naumast leynzt. mér, svo að ég hefði ekki til hans frótt, ef hann hefði komið hór fyrir þá. En ’96 sá ég hann hór fyrst. Síðan hefir hann með ári hverju komið oftar fyrir, og á umliðnu ári hefi ég haft hann 3 sinn- um til meðferðar á nýfæddum börnuru og tvisvar á fullorðnum. Umliðið ár fæddust um 175 börn hér í bænum; hafa þá 17/10 af hundraði fengið veikina, og rnunu ekki bæir erlendis gera öllu betur. í öllum menningarlöndum heimsins er þessi veiki atgeng, einkum í borgunum. Minna ber á henni til sveita, og svo mun það eins reynast hér á landi. Samkvæmt skýrslum frá

x

Eir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eir
https://timarit.is/publication/36

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.