Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.01.1846, Side 51

Skírnir - 01.01.1846, Side 51
53 þegar hann lireinsaÖi sig fyrir ölluin ákjærnm óvina sinna, og sem annars er engin vinur hans, kemst svo ab orðum um hann: „þessi mælsku- maður á sér eingan líka; ræðustóllin gjörir hann eins höfbínglegann, einsog liann gerir hina, þa8 er ab skilja mótstöbumenn hans, auÖvirðilega”. Gísó er þaunig lýst af þeim sem þekkja hann: „Hann er lítill maður vexti, lotinn í herbum og hallur á hægri hliö, þunnhærður og gráhærður, gagnfölur og kinnfiskasoginn. Er ekki kyn þótt hann líti vanheilsulega út, því bæði er hann heilsu- linur af náttúru, og verður þó að leggja meira á sig, enn flestir menn; þessutan er hann óvinsælli, enn nokknrr maðnr hefir verið á Frakklandi síðan þeir voru uppi Rissjelju og Masarein. — Hann gengur boginn að ræðustólnum, en þegar hann er þar kominn, lifnar liann allur'við; hann hefur höfuðið, augun vakna, ennib sléttist, yfirbragð hans glaðnar allt vib, og fyrirlitlega brosið, sem honum er eginlegt, leikur honum þá um varir. Ræðan rennur uppúr hönum, einsog árstrauraur, og svo margir sem hata hann, þá dást þó allir ab honum, að minnsta kosti meðan hann talar; og stakur er hann livab það snertir að tala mönn- um hughvarf. þaunig heppnaðist honum að fá það samþykkt að vollarnir umhverfis Parisarborg væri víggyrðtir og hervirkjaðir, svosem mörgum þókti það ísjárverbt á undan. Snmir og það ekki allfáir létu á sér heyra, að það miðaði til að stvrkja konúngsvaldið, því vollarnir væri fremur til þess, að verja borgina gegn sjálfum innbúunum, þegar og ef uppreisnir yrði innanborgar, heldur-

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.