Andvari - 01.01.1983, Blaðsíða 7
ANDVARI
KRISTJÁN ELDJÁRN
5
að teljast með öllu ókunnar, þó að ýmsar kenningar hafi verið á lofti um
þær. Hann mun vera fæddur nálægt 1390, en heimildir á 14. og 15. öld
eru af skornum skammti. Fylgikona hans og barnsmóðir er þó með vissu
talin hafa verið Þórunn, dóttir Finnboga liins gamla í Ási í Kelduhverfi
Jónssonar. Finnbogi kemur við skjö'l 1393-1440, var auðugur bóndi og ef
til vill valdsmaður. Sonur Jóns Pálssonar og Þórunnar var Finnbogi Jóns-
son lögmaður (d. eftir 1514), faðir Þorsteins sýslumanns Finnbogasonar í
Reykjahlíð (d. 1555), sem miklar ættir eru frá komnar. Hafi Jón Maríu-
skáld verið Norðlendingur að uppruna, eru Kristján Eldjárn og 15 for-
feður hans í beinan karllegg fæddir á Norðurlandi.
Hér fer á eftir yfirlit yfir beinan karllegg Kristjáns svo langt aftur í
tímann sem heimildir ná:
1. Dr. Kristján Eldjárn 1916-1982.
2. Þórarinn Kristjánsson Eldjárn 1886-1968.
3. Sr. Kristján Eldjárn Þórarinsson 1843-1917.
4. Sr. Þórarinn Kristjánsson, Vatnsfirði o. v., 1816-1883.
5. Sr. Kristján Þorsteinsson, Völlum o. v., 1780-1859.
6. Sr. Þorsteinn Hallgrímsson, Stærra-Árskógi, 1753-1791.
7. Sr. Ha'llgrímur Eldjárnsson, Grenjaðarstað o. v., 1723-1759.
8. Sr. Eldjárn Jónsson, Möðruvallaþingum, 1694-1725.
9. Jón Þórarinsson, bóndi, Grund í Höfðahv., f. um 1657, á lffi 1703.
10. Sr. Þórarinn Jónsson, Hrafnagili, um 1625-1698.
11. Jón Einarsson, lögréttumaður, Hafra'fellstungu, um 1595-1650.
12. Einar Nikulásson, bóndi, Héðinshöfða, um 1565-1625.
13. Nikulás Þorsteinsson, lögréttumaður, Reykjablíð og Munkaþverá,
um 1520-1596.
14. Þorsteinn Finnbogason, sýslumaður, Reykjahlíð, um 1485-1555.
15. Finnbogi Jónsson, lögmaður, Ási, Keldubverfi, um 1445-1515.
16. Sr. Jón Pálsson Maríuskáld, Grenjaðarstað, um 1390-1471.
Móðir Kristjáns Eldjárns, Sigrún Sigurhjartardóttir, var dóttir hjón-
anna Sigurhjartar Jóhannessonar og Soffíu Jónsdóttur á Urðum í Svarfað-
ardal. Á miðöldum íslands gerðu þann garð frægan ýmsir höfðingsbænd-
ur, lögmenn og hirðstjórar. Guðbrandur Þorláksson Hólabiskup náði eign-
arhaldi á Urðum eftir mikil málaferli um eignir afa síns, Jóns lögmanns