Andvari - 01.01.1983, Blaðsíða 71
andvari
TIL GRÍMS JÓNSSONAR AMTMANNS
69
þarámóti lítur svo út einsog Monrad
standi fast, því bæði lýður og höfðingjar
hafa traust á honum. Ekki er ómögu-
legt, að eg komi í sumar, og þá vona
eg eg geti komizt norður og heilsað
uppá Yður. En bréfið mitt verður nokk-
uð ósamanhangandi, því eg er að burð-
ast við ritgjörð um „Garantier" Eng-
lands og Frakklands fyrir Slesvík 1720,
sem nú á út að koma þó post festum sé.
Stefán litli Thorarensen sonur apótek-
ara Odds, allravænsti drengur, hefir lof-
að mér að annast þennan seðil, og hann
getur sagt Yður allar fréttirnar. Frænd-
stúlkunum bið eg kærlega að heilsa og
er jafnan
Yðar einl. elsk. systurson
Grímur
íslenzkt „Depaxtement": íslenzka stjómardeildin var stofnuð 10. nóveinber 1848, og varð Brynjólf-
ur Pétursson forstöðumaður liennar. - „Garantier" Englands . . . komu út 1848. - Frændstúlk-
unum bið ég . . . að heilsa: dætrum Gríms amtmanns, sem hjá honum dvöldust um þetta leyti. -
post festum: um seinan.
Kh. 28da Sept. 1848.
Elskulegi móðurbróðir.
Aungva línu hef eg séð frá Yður
langa lengi, svo ekki ætla eg heldur að
mæða Yður með löngu bréfi í þetta
sinn. En viðlagða ritgjörð sendi eg Yður
að gamni mínu og í virðingarskyni í
bréfs stað.
Fréttirnar fáið þér frá Joni, sem líka
sendir Yður „Fædrelandet“.
Eg er orðinn Cancellisti í „Udenrigs-
ministeriet“ einsog þér kannske vitið.
Það er alténd byrjun, en Guð veit, hvort
maður kemst lengra.
Eg vona og óska, að þér séuð frískur
og ánægður, að minnsta kosti er öll or-
sök til að óska Yður til lukku með að
vera heima og ei hér.
Með óskum alls góðs er eg jafnan
Yðar einlæglega elskandi
systurson
Grímur
Fréttimar fáið þér frá Jóni: sennilega Jóni, syni Gnms amtmanns.