Andvari - 01.01.1983, Blaðsíða 89
ANDVARI
87
EFNAHAGUR I ÖLDUDAL
stöðujöfnun á grundvelli aukinnar
samkeppni og tollfrjálsra viðskipta,
en ekki með sérstækum verndar- eða
stuðningsráðstöfunum.
Hvert þessara fimm atriða er svo um-
fangsmikið, að þeim verða ekki gerð
viðhtítandi skil í stuttu máli. Reyndar
má segja, að ég hafi þegar varið miklum
tíma í að tala um fyrsta atriðið eitt. Hin
fjögur eru ekki síður umræðuverð, en
þess er enginn kostur að gera þeim nú
verðug skil.
íslendingar standa á krossgötum í at-
vinnumálum. Brýn þörf er á að búa þró-
un atvinnuveganna hæfilega umgjörð
almennra vaxtarskilyrða, sem í senn
hvetji menn til framtaks og tryggi, að
ekki sé gengið svo nærri gæðum lands
og sjávar, að þau gangi úr sér. Þetta er
mikið verkefni, en kannski er mikil-
vægast að líta ekki á atvinnumálin grein
fyrir grein, heldur í heild, því að ríg-
skorðuð greinaskipting og stefnumótun,
sem ræðst af sérgreinasjónarmiðum,
heldur aftur af hagvexti. Það sem mestu
varðar fyrir atvinnuframfarir, er jafn-
vægi og festa í því efnahagslega og fé-
lagslega umhverfi, sem einstaklingar og
fyrirtæki starfa í, en ekki sértækar at-
vinnumálaráðstafanir.