Menntamál - 01.04.1962, Síða 23
MENNTAMÁL
13
Núverandi stjórn S.Í.B., talið frá vinstri: Frhnann Jónasson, skólastj.
i Kópavogi, Gunnar Guðmundsson, yfirkennari í Reykjavík, gjahl-
keri, Arsœll Sigurðsson, kennari i Reykjavik, ritari, Skúli Þorsteinsson,
kennari i Reykjavik, formaður, Stefán Jónsson, kennari og rithöfund-
ur, Ingi Kristjánsson, skólastjóri i Reykjavili og Jónas Jósteinsson,
fyrrv. yfirkennari, Reykjavik, varaformaður.
Ég hef um langan aldur þekkt barnakennarana mjög
vel og unnið mest með þeim um dagana. Þessir sam-
verkamenn mínir eru mér einkar hugstæðir vegna þeirra
kosta, sem þeir voru gæddir. Ég hef c-ingöngu reynt þá
að mikilli trúmennsku í störfum, góðvilja og dugnaði.
Ekki hef ég orðið þess var, að þeir barnakennarar, sem
unnið hafa með mér og hafa haft kennarapróf, stæðu að
baki sem kennarar barna og unglinga góðum kennurum
háskólagengnum. Eitt er það, sem sérstaklega hefur ein-
kennt barnakennarana. Það er bindindissemi og hvers
konar hófsemi. Engin stétt í þessu landi mun vera eins