Menntamál - 01.04.1962, Qupperneq 45
MENNTAMÁL
35
gangurinn sá, að létta undir með þeim mörgu fjölskyld-
um, sem hafa fyrir vangefnum börnum að sjá, en geta
ekki vegna rúmleysis eða annarra ástæðna komið þeim
á stofnanir við sitt hæfi. Ég þarf ekki að skýra þau mörgu
vandamál, sem oft skapast við það að hafa slík börn á
heimilum, enda myndi það lengja mál mitt enn meir.
Fyrst snerum við okkur til barnavinafélagsins Sumargjaf-
ar og vildum fá það til að taka þetta mál að sér, en það
sá sér af ýmsum ástæðum ekki fært að sinna því. Þá
snerum við okkur til bæjaryfirvaldanna, en fengum þau
svör, að ríkið hefði með lögum frá 1936 tekið að sér að
reisa slíkar stofnanir og bæri því skylda til að sjá um
framkvæmdir allar í því sambandi. Ríkisyfirvöldin sáu
sér heldur ekki fært að sinna málinu að svo stöddu, svo
að annaðhvort varð félagið að leggja árar í bát eða hefj-
ast sjálft handa og valdi seinni kostinn. Húsnæði var
tekið á leigu, ráðin fóstra og auglýst eftir börnum. Tvær
umsóknir bárust. Eftir á skil ég varla af hverju við gáf-
umst ekki upp strax, en við vorum sannfærð um, að fólk
þyrfti tíma til að átta sig, enda kom það á daginn. Leik-
skólinn starfaði nú einn og hálfan vetur í leiguhúsnæði.
Þar voru að lokum komnir sex drengir og almennur
áhugi farinn að vakna fyrir starfseminni. Við sóttum
strax um styrk frá ríki og bæ til rekstursins og fengum
25 þús. kr. frá hvorum aðila á ári og höldum þeim styrk
enn. Eftir þessa vetur kom í ljós, að ógerlegt var að
reka þessa stofnun áfram í leiguhúsnæði. Félagið réðst
því sjálft í að byggja hús yfir þessa starfsemi sína. Fyrst
var í ráði að byggja lítið og ódýrt timburhús eða skála,
en til þess fékkst ekki leyfi hjá bæjaryfirvöldunum. End-
irinn varð sá, að byggt var 1550 rúmmetra hús, stein-
steypt, á einni hæð, með 5 leikstofum, eldhúsi, borðstofu,
kennaraherbergi, skrifstofu, tveim hvíldarherbergjum,
tveim snyrtiherbergjum fyrir börn, tveim snyrtiherbergj-
um fyrir starfsfólk, stórum gangi og tveim fataherbergj-