Menntamál - 01.04.1962, Side 58
48
MENNTAMÁL
Meðalgreindarvisitölur
Piltar Stúlkur Allir
Próf M. J 100,2 99,98 100,09
Próf Wechslers 102,17 98,75 100,46
Fróðlegt er að veita því athygli, að þyngdarmismunur
prófanna í heild nær ekki hálfu greindarvísitölustigi. Að-
ferðirnar virðast því álíka þungar. Mismunur pilta og
stúlkna, sem kom í ljós við próf dr. Matthíasar, er á sama
veg, en heldur meiri við próf Wechslers.
Dreifitala prófs Wechslers reyndist 13,27. Er það held-
ur lægra en við próf dr. Matthíasar, en þar var dreifitala
tilraunarhópsins 15,0, eins og fyrr er getið. Lækkunin er
þó ekki meiri en svo, að hún gæti verið tilviljun að kenna,
samkvæmt athugun með staðtölulegum aðferðum.
Geta má þess, að nokkrum atriðum í hinum munnlega
hluta prófs Wechslers var breytt við þýðinguna. Við þá
breytingu var þess gætt, að hún yrði ekki til að þyngja
eða létta prófið um of. Hinn verklegi hluti var aftur á
móti óbreyttur. Er því fróðlegt að gera samanburð á
meðaltölum prófs dr. Matthíasar og hvors hluta í prófi
Wechslers fyrir sig, en þau voru þessi:
Próf M. J............................... 100,09
Próf Wechslers, munnlegur hluti...... 100,13
Próf Wechslers, verklegur hluti ....... 100,81
Hinn verklegi hluti reyndist því óbreyttur h. u. b. jafn
þungur og próf dr. Matthíasar. Munurinn er aðeins tæp-
lega y4 úr greindarvísitölustigi, verður það að teljast
furðulega nærri réttu lagi.