Menntamál - 01.04.1962, Page 89
MENNTAMÁL
79
ist frá um 9 eða 11 ára aldur. 3. Að öll forsögn greindar-
prófa um námsgengi ákveðins gáfnaþroska sé háð kost-
um og göllum kennslunnar. Þannig dróst hið margum-
rædda kennaravandmál inn í umræðurnar.
Þingið gerði enga ályktun né áskorun. Ákveðnum
manni, dr. A. H. Halsey frá Háskólanum í Birmingham,
var falið að draga saman heildarniðurstöður umræðn-
anna, og munu þær á sínum tíma verða sendar þátttak-
endum. Hér mun þó hafa verið hreyft við máli, sem vænt-
anlega á eftir að hafa mikil áhrif á skólakerfi hinna
ýmsu þátttökuríkja og víðar um heim. Það kemur að áliti
þingsins æ greinilegar í ljós, að í hinni öru tækni- og
framleiðslubyltingu, sem nú gengur yfir, hafa skólarnir
ekki undan að skila hæfu og vel menntuðu fólki til að-
kallandi starfa. Það var einróma álit þingsins, að efna-
hagsleg velmegun þjóðanna væri undir lausn þessa vanda-
máls komin. Það tók þannig fyllilega undir orð sænska
menntamálaráðherrans, sem getið var í upphafi þessa
máls.
Lionel Elvin, prófessor í uppeldisfræði frá Lundúna-
háskóla, var forseti þingsins. Stjórnaði hann hinum marg-
þættu umræðum með röggsemd og glæsibrag.
Reykjavík, í ágúst 1961.
Matthías Jónasson.
Sveinbjörn Sigurjónsson.