Menntamál - 01.04.1962, Blaðsíða 92
82
MENNTAMÁL
Frá stjórn S.Í.B.
Sambandsstjórn þykir hlýða að gera í stuttu máli grein
fyrir því helzta, sem gerzt hefur í baráttumálum stéttar-
innar síðan í vor, og hvernig nú standa sakir í þeim
efnum.
Uppeldismálaþingið í vor ítrekaði kröfur síðustu full-
trúaþinga í launa- og kjaramálunum, og var þá enn á
ný gengið með þær á fund menntamálaráðherra. Síðan
hefur sambandsstjórn eftir beztu getu unnið að þessum
málum og oftar en einu sinni rætt þau við ráðherra, og
hafa stjórnir S.l.B. og L.S.F.K. haft samráð sín í milli
í þessu efni. Um árangur verður ekkert fullyrt að svo
komnu máli. Beinar launahækkanir hafa kennarar engar
fengið. Hins vegar féllst ráðherra á að samræma greiðsl-
ur fyrir heimavinnu á gagnfræða- og barnaskólastiginu.
Er það eðlileg leiðrétting mála og til bóta, svo langt sem
hún nær. Gallinn er sá, að hún nær aðeins til þeirra, sem
kenna móðurmál, reikning og dönsku. Margir kennarar
verða því afskiptir, þar á meðal allir sérgreinakennarar.
Æskilegast hefði verið, að þessar greiðslur hefðu náð til
allra starfandi kennara, en þess var ekki kostur, þar sem
þær voru einskorðaðar við hliðstæðar námsgeinir og
heimavinna er greidd fyrir á gagnfræðastiginu. Hér er
því um takmarkaða lagfæringu á réttlætismáli að ræða,
en ekki lausn á hógværum launakröfum stéttarinnar. —
1 sambandi við launamálin er rétt að geta þess, að próf-
málinu vegna yfirvinnukaups kennara er ekki enn lokið,
svo að ekkert verður um það sagt að svo stöddu.
Á uppeldismálaþinginu voru einnig samþykktar tillög-
ur um aðbúnað og kennslu tornæmra barna. Sambands-
stjórn hefur rætt þetta mál við fræðsluráð og fræðslu-