Menntamál - 01.04.1962, Page 97
MENNTAMÁL
Bæjarstjórn Isaíjarðar
greiðir kennurum launabætur.
87
Hinn 22. ágúst s.l. óskaði fræðsluráð ísafjarðar eftir
því, að bæjarstjórnin samþykkti, að kennurum barnaskól-
ans á ísafirði yrðu greiddar ákveðnar launauppbætur til
viðbótar lögboðnum kennaralaunum.
Bæjarstjórn ísafjarðar samþykkti eftirfarandi ályktun
samhljóða:
„f tilefni af alvarlegum kennaraskorti við Barnaskóla
fsafjarðar, og í sambandi við samþykkt fræðsluráðs fsa-
fjarðar, þar sem óskað er heimildar bæjarstjórnar til að
greiða kennurum skólans launabætur, tekur bæjarstjórn
það fram, að hún álítur, að brýn og aðkallandi nauðsyn
sé á því, að launakjör kennara verði nú þegar bætt veru-
lega. Að öðrum kosti er ekki annað sjáanlegt, en að enn-
þá alvarlegra ástand skapist í fræðslumálum þjóðarinnar
en nú er.
Telur bæjarstjórn að ríkisvaldinu, sem tekið hefur að
sér að ákveða og greiða laun kennara, beri að taka þetta
mál til skjótrar úrlausnar.“