Menntamál - 01.04.1962, Page 98
88
MENNTAMÁL
Lög Sambands ísl. barnakennara.
1. grein. Sambandið heitir: Samband íslenzkra barna-
kennara, skammstafað S. í. B.
Það er ópólitískt samband kennarafélaga og einstakra
barnakennara.
Tilgangur sambandsins er:
a) að vinna að alhliða framförum í uppeldi barna á
Islandi.
b) að gæta hagsmuna barnakennarastéttarinnar og
stuðla að aukinni menntun hennar.
2. grein. Sambandið leitast við að ná tilgangi sínum
með því:
a) að efla áhuga alþjóðar á umbótum barnauppeldis.
b) að stofna til almennra uppeldisþinga.
c) að gangast fyrir því, að uppeldismál séu rædd
opinberlega og gefa út tímarit um uppeldis- og
kennslumál.
d) að gangast fyrir því, að haldin séu námskeið fyrir
barnakennara.
e) að beita sér fyrir umbótum á skólahúsum, kennslu-
áhöldum, kennslubókum, kennsluaðferðum og allri
starfrækslu barnaskóla á Islandi.
f) að efla samvinnu íslenzkra barnakennara og gang-
ast fyrir stofnun kennarafélaga.
g) að vinna að því, að dugandi menn afli sér kennara-
menntunar og réttinda og helgi barnafræðslunni
krafta sína.
h) að vinna að sérhverju því, er uppeldismálum þjóð-
arinnar má að gagni koma.
3. grein. Þeir hafa rétt til að vera í S. I. B., sem hafa
með prófi öðlazt rétt til barnakennarastöðu og starfa að