Eimreiðin - 01.01.1960, Blaðsíða 9
h.f. eimskipafélag íslands
Aðalfundur hlutafélagsins Eimskipafélags íslands verður hald-
inn í fundarsalnum í húsi félagsins, föstudaginn 3. júní 1960, og
hefst kl. 1.30 eftir hádegi.
1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmdum
á liðnu starfsári og frá starfstilhögun á yfirstandandi
ári, og ástæðum fyrir henni, og leggur fram til úrskurð-
ar endurskoðaða rekstursreikninga til 31. des. 1959 og
efnahagsreikning með athugasemdum endurskoðenda,
svörum stjórnarinnar og tillögum til úrskurðar frá
endurskoðendum.
2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skipt-
ingu ársarðsins.
3. Kosning fjögurra manna í stjórn félagsins, í stað þeirra
sem úr ganga samkvæmt samþykktum félagsins.
4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess er frá fer, og
eins varaendurskoðanda.
5. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins (ef til-
lögur koma fram).
6. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp
kunna að verða borin.
Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og um-
boðsmönnum hluthafa í skrifstofu félagsins í Reykjavík, dagana
30. maí til 1. júní næstk. Menn geta fengið eyðublöð fyrir umboð
þess að sækja fundinn á aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík.
Óskað er eftir að ný umboð og afturkallanir eldri umboða séu
homin skrifstofu félagsins í hendur til skráningar, ef unnt er,
viku fyrir fundinn.
Reykjavík, 19. janúar 1960.
STJÓRNIN.