Eimreiðin - 01.01.1960, Blaðsíða 15
EIMREIÐIN
3
fyrsta hefti yfirstandandi árgatigs er nokkru siðbúnara en vera
skyldi, og eru lesendur beðnir velvirðingar á því. En framvegis
mun Eimreiðin koma reglulega út fjórða livern mánuð, og er áœtl-
að að útkomumánuðirnir verði þessir: marz, júlí og nóvember.
Það skal tekið fram að vegna mikillar hœkkunar á útgáfukoslti-
aði ritsins, eittkanlega á pappir, póstgjöldum, myndamótum og
fleiru — svo og þeirrar efnisaukningar, sem leiðir af fyrrgreitidri
skipulagsbreytingu, verður ekki hjá því komizt að hœkka áskriftar-
ycrðið úr kr. 85 i kr. 100 á ári. Er þess vœnzt að kaupcndur sýni
skilning á þessari nauðsyn, enda er hœkkuninni mjög i hóf stillt.
miðað við aukinn tilkostnað.
Að endingu vil ég heita á alla velunnara Eimreiðarinnar, að slá
skjaldborg um þetta gamla og merka timarit, stuðla að út.breiðslu
þess og senda þvi efni til birtingar.
Ingólfur Krisljánsson.
Guð heimsækir oss oft, eu yfirleitt erum vér ekki heima.
(Joseph Roux).
Til að smíða hamingju sína nota margir menn náungann sem steðja.
(Peter Sirius).
Aðeins fáir menn hugsa, en samt hafa allir sínar skoðanir.
(G. Berkeley).
Mikilvægustu atburðirnir í lífinu veita mönnum meira efni til um-
t:,ls en umhugsunar.
(Otto Weiss).
Skynsemin auðgast við það að öðlast, hjartað við það að gefa.
(Victor Hugo).
Að hugsa er svo þreytandi, að margir kjósa fremur að dæma.
(Otto Weiss).
Lítilmenni fyrirgefur aldrei.
(Laurence Sterne).