Eimreiðin - 01.01.1960, Blaðsíða 14
9
EIMREIÐIN
þágu Eimreiðarinnar, svo og öllum hinum mörgu traustu vinum
og velunnurum ritsins.
Það er einlæg von rnin og viðleitni að Eimreiðin megi halda þeim
vinsældum í framtiðinni meðal vandlátra lesenda og skipa þann
virðingarsess, sem hún hefur ávallt gert. Eimreiðin mun eins og
áður leitast við að hafa vakandi auga á þvi bezta, sem fram kemur
*á sviði bókmennta, og fylgjast með nýjungum og þróun annarra
menningarmála. Einnig vill hún Ijá rúm hverskyns efni til skemmt-
unar og fróðleiks, sem hefur jákvæðan boðskap að flytja og stefnir
til mannbóta og menningar, en ekki mannskemmda og niðurrifs.
Margvíslegar breytingar hafa orðið i. þjóðlifinu á þeim 65 áruni,
sem liðin eru frá því Eimreiðin hóf göngu sina, og ekki liafa pessar
breytingar hvaðsízt kornið niður á blaða- og timaritaútgáfunni. Með-
an blaða- og bókakostur var hér lít.ill, þóltu tímarit á borð við Eim-
reiðina miklir aufúsugestir. Með vaxandi útgáfu blaða og allskyns
timarita, liefur samkeppnin harðnað fyrir gamalt og vandað tima-
rit, sem ekki hefur viljað láta leiðast til pess að slá á þá strengi, sem
ýmis skemmtirit hafa byggt afkomu sina á. Þrátt fyrir harðnand1
samkeþpni liefur Eimreiðin ávallt haldið vöku sinni og siglt gegn
um brim og boða i trú á gildi sitt og það hlutverk, sem hún hefur
viljað vinna bókmenntum og menningu þjóðarinnar. Og enn i
dag er Eirnreiðin pað bókmenntatímarit, sern viðast er lesið i land-
inu, þrátt. fyrir glaum og guspur allra léttmetis- og skemmtirita.
Það er pó enganveginn svo að skilja, að Eimreiðin kunni ekki vel
að meta nýjungar, sem hljóta að sigla i kjölfar breyttra tima; hún
vill einmitt vera frjálslyndur boðberi hverskonar nýjunga, sem til
heilla virðast liorfa. í þvi sambandi má geta þess, að ritið hefur leit-
að eft.ir samvinnu við nokkra menntamenn á sviði visinda og tækm
og væntir þess, að geta öðru hvoru birt greinar um slik efni.
Eins og lesendur sjá hefur nú verið gerð nokkur útlitsbreyting a
Eimreiðinni, bæði. á kápu og letri. Er meginhluti lesmálsins á smærra
iletri en áður, og lesmálsflötur siðanna nokkru stærri, án þess þó að
brotið breytisl nokkuð. Kemur þetta fram á minkuðum spássíum-
Leiðir þetta af sér að meira efni kemst fyrir á liverri örk en áður
hefur verið e.n þar á möti kemur pað, að arkaf jöldi árgangsins verður
18 i stað 20 arka áður. Framvegis verður Eimreiðin þrjú 6 arka
hefti á ári i stað fjögurra 5 arka liefta undanfarið. Þar með er Eim-
reiðin aftur komin í sama farveg og meðan Valtýr Guðmundsson gaf
hana út, en þá kom liún lengstaf út þrisvar sinnum á ári. Þetta