Nýtt og gamalt - 01.01.1914, Blaðsíða 11
9
þýðingu, er, hvað Jesús Kristur er
þar oft kallaður h i n n S m u r ð i.
Eftir því, sem mjer telst til við
lauslega talningu, er hann nefndur
svo að minsta kosti 115 sinnum, og
á öllum þeim stöðum er Smurði með
stórum staf sem eiginnafn væri og
þó ákveðni greinirinn á undan, sem
er harla óeðlilegt eftir íslensku máli.
— Eba hvað mundu menn segja, ef
einhver tæki upp á því, að setja
ákveðna greinirinn fyrir framan nöfn
þeirra í hvert skifti, sem þeir væru
nefndir? — T. d.: „hinn Jón, hinn
Sveinn“ !
Sömuleiðis er þetta nýja heiti
kaldranalegt og óviðfeldið í upp-
byggilegu máli og kunnum ritningar-
stöðum, þar sem vjer erum vanir
að heyra nafnið Kristur. — Eða
hvað segja biblíuvinir um eftirfarandi
greinar úr nýju þýðingunni: „Pyrst
þjer því eruð uppvaktir með hinum
Smuiða, þá keppist eftir því, sem er
hið efra, þar sem hinn Smurði situr
við hægri hönd Guðs................Líf
yðar er fólgið með hinum Smurða í
Guði. Þegar hinn Smurði, vort lif,
opinberast, þá munuð þjer og ásamt
honum opinberast í dýrð“ (Kol. 3. 1.
3. 4.), — og „því að eins og allir
deyja fyrir samfjelag sitt við Adam,
svo munu allir lífgaðir verða fyrir
samfjelag sitt við hinn SmurÖa. En
sjerhver í sinni röð: Kristur sem