Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2007, Síða 38
verðlaunin, sem veitt eru í þremur flokkum. Verðlaunin í ár í flokki fyrirtækja og félaga-
samtaka hlaut Alcan fyrir Stóriðjuskólann og uppbyggingu náms við hann. Verðlaun í
flokki skóla og fræðsluaðila hlaut Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra fyrir öflugt sam-
starf á svæðinu við grunnskóla og fyrirtæki við að kynna og gera veg iðrvnáms sem mestan.
Verðlaun í opnum flokki hlaut Björg Árnadóttir, forstöðumaður Námsflokka Reykjavíkur.
Átta manns skipa stjórn Menntar, tveir tilnefndir af ASÍ, tveir af Samtökum atvinnulífs-
ins, tveir af Iðnmennt (Sambandi iðnmenntaskóla), einn af Samstarfsnefnd um menntun
í iðnaði og einn fulltrúi háskólastigsins. Núverandi formaður er Halldór Grönvold, full-
trúi ASÍ. Framkvæmdastjóri Menntar árið 2006 var Aðalheiður Jónsdóttir, en Arnbjörn
Ólafsson tók við af henni 1. janúar 2007. Skrifstofa samtakanna er í Skeifunni 8. Vefsíða
MENNTAR er www.mennt.is og þar má finna frekari upplýsingar um samtökin.
Steindór Guðmundsson, formaður menntamálanefndar VFÍ
Hagsmunafélag um eflingu verk- og tæknimenntunar
Hagsmunafélag um eflingu verk- og tæknimenntunar á háskólastigi var stofnað 23. mars
2000. Stofnendur voru Háskóli Islands, Háskólinn á Akureyri, Tækniskóli Islands (nú
Háskólinn í Reykjavík), Verkfræðingafélag íslands, Tæknifræðingafélag íslands og
Samtök iðnaðarins. Fulltrúi TFÍ er Karl Ragnarsson og fulltrúi VFÍ er Magnús Gíslason.
Markmið Hagsmunafélagsins er að efla verkfræði- og tæknifræðimenntun á Islandi.
Þessu vill félagið ná með samnýtingu og samstarfi milli háskóla en nauðsynlegt er að
auka framboð á raungreinamenntun á háskólastiginu. Horfa verður sérstaklega til þess
að auka framboð menntunar á landsbyggðinni. Möguleikar til slíks liggja einkum í
auknum samlegðaráhrifum háskóla og rannsóknastofnana. Hagsmunafélagið vill að öll
tækifæri séu nýtt til þess að bæta menntun í raungreinum, sérstaklega á sviði verkfræði
og tæknifræði. Hagsmunafélagið telur að um þessar mundir sé sérstakt tækifæri og
ástæða til að fjölga nemendum, ekki síst konum, í verkfræði og tæknifræði. Hagsmuna-
félagið hefur vakið athygli ungs fólks á tækifærum sem felast í verk- og tækninámi, m.a.
með opnum fundum og útgáfu kynningarefnis.
Hagsmunafélagið hefur veitt einstaklingum viðurkenningu fyrir gott framtak á sviði
raungreinakennslu og veitir árlega grunnskólum viðurkenningu fyrir góðan námsár-
angur á samræmdum prófum í 10. bekk. Á síðastliðnum tveimur árum hafa ekki verið
veittir slíkir styrkir en áhersla lögð á umræðu og kynningu á verkfræði og tæknifræði-
menntun. Fjárhagsstaða samtakanna er góð.
Faghópur um hljóðhönnun
I september síðastliðinn var haldinn stofnfundur félags um hljóðhönnun. Félagið starfar
sem faghópur innan vébanda VFI ogTFI en er opinn áhugasömum einstaklingum utan
félaganna. Stofnun félagsins var m.a. að áeggjan norrænna hljóðsérfræðinga. Slík
fagfélög hafa verið starfrækt um árabil í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi. Að
mati stofnfélaga er sérstakt fagfélag hljóðsérfræðinga löngu orðið tímabært hér á landi.
Þar koma bæði til þeir almannahagsmunir sem í húfi eru sem og þörfin fyrir faglegan
samráðsvettvang. Mikilvægi málaflokksins má glöggt merkja af síaukinni opinberri
umræðu um málefni hljóðvistar og hljóðhönnunar hér á landi.
3 6| Arbók VFl/TFl 2007