Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2007, Page 214
Hönnun flugferla
Til þess að flugvél geti flogið sína leið og eftir áðurgreindum flugleiðsögutækjum þarf að
reikna út og skoða vel ýmsa þætti sem snúa að brottflugi, leiðarflugi og aðflugi, svo sem
hvort og hvernig hindranir stofna fluginu í hættu, hver verða áhrif landslags og legu
brottfarar- og aðkomuflugvallar, hvaða áhrif hefur stærð flugvélar um viðbragð eða
flughraða og svo framvegis. Þessi skoðun er það sem kallað er hönnun flugferla og er
mikilvægur þáttur í flugöryggi.
Hönnun flugferla byggist á stöðlum útgefnum af Alþjóðaflugmálastofnuninni (ICAO) en
þessir staðlar eru í stöðugri þróun og byggja meðal annars á gögnum um flugatvik eða
flugslys víða um heim og hvernig þau ber að. Til dæmis byggja aðflugshönnunarstaðlar
fyrir ILS-aðflug að stóru leyti á tölfræðilegri úrvinnslu á dreifingu flugslysa í kringum
flugbrautir í heiminum. I því sambandi eru svokölluð „Collision Risk Model" (CRM)
notuð til að reikna út líkur á því að flugvél gæti rekist á hindrun, svo sem staur eða annað
á flugvallarsvæði þegar hún lendir eða fer í loftið.
Almennt séð hefst hönnun flugferla á því að landslag í kringum flugleiðirnar og staðsetn-
ing flugvallarins eru skoðað í samhengi. Yfirleitt er reynt að ná fram sem bestri nýtingu
á flugvellinu m.t.t. veðurskilyrða, svo sem slæms skyggnis, lágar skýjahæðar og myrkurs,
án þess þó að stefna flugöryggi í hættu. Raunin er sú að á íslandi er fjalllent og landslag
stórbrotið og stundum tekst ekki að hanna gott blindflugsaðflug að öllum flugvöllum.
Vestfjarðafjórðungur er t.d. einungis með blindaðflug sem lýkur við mynni fjarða en ekki
á lokastefnu flugbrauta eins og hefðbundin blindaðflug. Jafnframt getur í sumum
tilvikum kostnaður ráðið ferðinni en því nákvæmari og fleiri sem aðflugsleiðsögutækin
eru því viðameiri verður fjárfestingin.
Mynd 3.Dæmigerð hönnunarteikning úraðflugshönnun sem sýnir
hvernig öryggisfletir víkka út frá staðsetningu flugleiðsöguvirkisins (Iftill
hringur á milli samsíða lína á miðri mynd).
MNM
IKTS
REYKJAVIK
RKNOB RWY 13
RACETRACK/BASETURN
BASEDON
CAT 'A* / *B' 140 KTS
CAT’CT 185 KTS
Þegar almennri könnun er
lokið er safnað saman hindr-
anaupplýsingum og helstu
svæði og hindranir kortlögð.
Ráðandi hindranir eru þær
hindranir sem takmarka að-
flugið og skilgreina að lokum
aðflugslágmörk, þ.e. lægstu
hæð flugvélar sem leyfilegt er
að fara niður í áður en
flugvélin þarf að hefja brott-
hvarfsflug. Við slíka skoðun
eru teiknaðir upp þrívíðir ör-
yggisfletir eða hönnunarfletir
aðflugsins. Dæmi um slíka
hönnunarfleti má sjá á mynd-
um 3 og 4. Þessir fletir hafa
það að markmiði að umlykja
flugferilinn sem er verið að
hanna og krafan er sú að eng-
inn hlutur eða landslag frá
jörðu rjúfi fletina. Uppbygging
þessara öryggisflata er stöðluð
og gefin upp með skýrum
reikniformúlum. Uppbygg-
ingin tekur mið af tegund
aðflugs, tegund flugvélar,
flughraða, hreyflagetu, að-
flugshalla, beygju á flugleið,
2 1 21 Arbók VFl/TFf 2007