Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2007, Page 225
SAMTÍMAÞEKKING OG HÆFNIS-
KRÖFUR í VERKEFNASTJÓRNUN
Helgi Þór Ingason er Ph.D. í framleiðsluferlum í stóriðju frá Norska Tækniháskólanum í Þrándheimi og M.Sc. I véla- og
iðnaðarverkfræði frá Háskóla Islands. Helgi Þór hefur unnið að rannsóknum, stjórnun minni og stærri verkefna og
samhæfingu stórra stefnumótunarverkefna, áætlanagerð, umhverfismati og gerð viðskiptaáætlana. Hann er annar
tveggja frumkvöðla og nú stjórnarformaður fyrirtækisins Als, álvinnslu hf., sem rekur álendurvinnsluverksmiðju á
Reykjanesi.Áðurvann hann m.a.sem aðstoðarmaður framkvæmdastjóra (slenska járnblendifélagsins hf.og blaða-
maður á Morgunblaðinu. Helgi Þór er dósent við verkfræðideild Háskóla Islands. Hann er forstöðumaður MPM-náms
við verkfræðideild Háskóla (slands sem er fjögurra missera meistaranám I verkefnastjórnun. Einnig er hann I forsvari
fyrir námsbrautina Verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun við Endurmenntunarstofnun H( og nýja námsbraut í
gæðastjórnun í samstarfi verkfræðideildar og Endurmenntunarstofnunar. Helgi Þór hefur alþjóðlega vottun sem
verkefnastjóri (Certified Senior Project Manager).
Abstract
The paper gives an overview of recent development in the area of project management and lists examples of tools for
assessing in which direction the methodology is heading.The main focus areas within project management are reflected
by applying the Eye of Competence - presented in the IPMA Competence Baseline in 2006.The traditional view of project
management as a toolbox of technical methods is being replaced by a modern view where project management is a gen-
eral management approach for organizations and an increasing emphasis is put on human behaviour and the context of
the projects within the framework of the organization.
Lykilorð: Greiningartæki, samtímaþekking, hæfniskröfur, meginflokkar verkefnastjórnunar.
Inngangur
Hvaða þekkingu og hæfileika þarf verkefnastjóri
að hafa til að bera?
Ein leið til að nálgast viðfangsefnið er að vísa til
þekktra skilgreininga á verkefnastjórnun, til
dæmis skilgreiningar alþjóðlegu staðlasamtak-
anna: „Áætlanagerð, skipulagning, vöktun,
stjórnun og skýrslugjöf um allar hliðar verkefnis
og hvatning allra sem taka þátt í verkefninu í því
skyni að ná markmiðum þess" [1].
Þessi og aðrar hefðbundnar skilgreiningar eru
fremur almenns eðlis og gefa ekki víðtækt svar
við þeirri spurningu hvaða þekkingu og færni
hinn hæfi verkefnastjóri þarf að búa yfir. Þekktir
staðlar, svo sem Project Management Body of
Knowledge - PMBok [2] og ISO 10006:2003 |lj,
skilgreina verkefnastjórnun sem samofna ein-
ingu þekkingar. PMBok hefur öðlast gríðarlega
útbreiðslu og er þekktur hugtakagrunnur um
heim allan. Hann skiptir verkefnastjórnun í níu
þekkingarsvið eins og mynd 1 sýnir.
Mynd I.Framsetning PMBoká hinum níu þekkingarsviðum verkefna-
stjórnunar.
Ritrýndar vísindagreinar i 223