Skagfirðingabók - 01.01.1975, Side 63
SÉRA ÞORSTEINN PRESTLAUSI
kunnuglega sagt frá Helgu Einarsdóttur og dóttur hennar, að höf-
undur hefur verið því fólki vel kunnugur, og til auðkennis nefnir
hann, að Helga hafi átt Steiná í Svartárdal. Hún virðist því hafa
verið húnvetnsk og ekkja á árunum um 1560—1570, áður en
hún giftist Bergþóri, með því að Guðríður kona Bjarna er varla
fædd eftir 1560—1565, og Bergþór hefur verið orðinn allgamall
þegar hann kvæntist Helgu, ef það hefur verið löngu eftir 1570.
Hér kemur því í niðjatalinu fram heimild um Helgu Einarsdóttur,
efnaða ekkju í Húnavatnsþingi á árunum 1560—1570, sem átt
hafði Þorstein Jónsson. Það er freistandi að álykta, að hún sé sama
kona sem sú, er fylgdi Þorsteini á Höskuldsstöðum, og er þá ljóst,
að séra Þorsteinn, sem samkvæmt niðjatalinu hefur þá verið faðir
Guðríðar konu Bjarna Fúsasonar, hefur lifað fram á miðja 16.
öld, með því að Guðríður getur varla verið fædd fyrr en um 1550.
Það verður þröngt um Guðríði Þorsteinsdóttur og Bjarna Fúsa-
son, ef Guðríður var dóttir séra Þorsteins prestlausa og Helgu
Einarsdóttur. Guðríður verður þá að vera meðal yngstu barna
þeirra, en samt töluverðu eldri en Bjarni Fúsason. Þetta getur verið
rétt og er sennilegra en það, að tvær Helgur Einarsdætur, hún-
vetnskar ekkjur og efnaðar konur, báðar fyrr giftar Þorsteini Jóns-
syni, hafi verið uppi samtímis, en fulla vissu um þetta hafa menn
ekki.
Ef hér er um eina konu að ræða vaxa líkurnar fyrir því, að það
hafi raunar verið séra Þorsteinn á Höskuldsstöðum Jónsson, sem
fyrstu árin eftir siðaskiptin lætur til sín taka nyrðra, og hafði þá
verið embættislaus í allmörg ár.
Til yfirlits er hér endurtekið, að séra Þorsteinn virðist vera
fæddur nálægt 1485 og Þórunn systir hans nálægt 1500, en
hann deyr um 1553, líklega tæplega sjötugur. Helga Einars-
dóttir virðist vera fædd um 1510 og virðist hafa fylgt séra Þor-
steini frá því um 1530. Hún á jarðir á Skagaströnd og bendir það
til þess, að í þeirri sveit hafi þau séra Þorsteinn búið, einnig eftir
að hann lét af prestskap, en um það verður ekkert fullyrt. 21 árs
tímabilið, sem Helga segist hafa verið á Skagaströnd, hygg ég þó
að falli að mestu yfir sambúðartíma þeirra séra Þorsteins. Rétt
61