Skagfirðingabók - 01.01.1975, Side 84
SKAGFIRBINGABÓK
hest eins forviða og skelkaðan og aumingja Mósa, þegar hann
reis aftur á fætur.
Um miðja nótt lögðum við af stað vestur um Bláfell. Þar er
ósköp lítið um haga, og héldum við því áfram, unz við komum
að Gullfossi kl. 8 um morguninn, en þaðan héldum við að Geysi
í Haukadal og náðum þangað tveim tímum síðar. Þá vorum við
örþreyttir og rennblautir; ég var alveg að sofna á klárnum.
I gistihúsinu höfðum við fataskipti og átum miðdegisverð, fór-
um síðan að skoða svæðið. Klukkan hálffjögur voru 60 kg af
sápu látin í Stóra-Geysi, og hálftíma síðar gaus hann upp í 55—60
m hæð. Fólkið, sem var viðstatt, klappaði, en hvort það var fyrir
Geysi eða sápunni, skal látið ósagt. Við sváfum svo dálítið og
fengum okkur síðan að borða („eilíf veizlugleði", sagði Krist-
mundur), sofnuðum svo aftur og sváfum eins og steinar um
nóttina.
Um hádegi næsta dag kvöddum við gestgjafann, þann fræga
fylgdarmann og ferðagarp, Sigurð Greipsson, en hann var af sömu
ætt og ungur, prýðilegur fylgdarmaður okkar Dananna árið 1934,
Greipur Kristjánsson, og lögðum af stað heimleiðis. Við stöldruð-
um við hjá Gullfossi, áttum að bíða eftir brottför tveggja bíla,
sem voru á leið til Hveravalla. Þetta var önnur bílferð þangað,
hin fyrsta var farin tveim dögum áður,þann 18. júlí 1937. Við héld-
um áfram í Fremstaver fyrir sunnan Bláfell, rétt við Hvítá; þar
var góður kofi og ágæt steinrétt. Sváfum við prýðilega af nóttina,
sofnuðum þó seint, því að Kristmundur var að búa til týru, svo
að við gætum lesið, hafði til þess flösku, ull og steinolíu. Veðrið
var ákaflega hlýtt, norðan gola og sólskin daglangt. En ekkert
breytist eins fljótt og íslenzka veðrið. Daginn eftir var hann all-
hvass á norðan með húðarrigningu. Við vorum því um kyrrt í
Fremstaveri þann dag, lásum af kappi bækur, sem við höfðum
meðferðis og blöð, sem Sigurður Greipsson hafði beðið okkur
fyrir handa varðmönnum. Daginn eftir var aftur orðin veður-
brevting, norðan kaldi, en hlýtt og sólskin. Þurrkuðum við því föt
okkar og héldum af stað austan megin Bláfells. Sú leið er miklum
mun betri en vesturleiðin, mjúk gata og hagar alls staðar.
82