Skagfirðingabók - 01.01.1975, Side 112
SKAGFIRBINGABÓK
vitni stærð sveitarinnar. Flóki Vilgerðarson, Hrafna-Flóki, er tal-
inn hafa numið land milli Stafár og Flókadalsár og búið á Mói.3
Nafar-Helgi telst hafa numið land frá Flókadalsá og upp að
Tunguá í Stíflu, og er líklegast, að austurmörk lands hans séu
Miklavatn, Fljótaá og Stífluá. Hann bjó á Grindli.4 Þórður
Knappur Bjarnarson hefur numið Stíflu, austan ár, og hann er
sagður hafa búið á Knappsstöðum.5 Bárður suðureyingur er sagð-
ur hafa numið land „upp frá Stíflu til Mjóvadalsár“, og Brúni
hinn hvíti Háreksson er talinn nema land „milli Mjóvadalsár og
Úlfsdala“, en hann bjó á Brúnastöðum.6 Örnefnið „Mjóvadalsá“
eða „Mjóvidalur“ þekkist ekki í Fljótum, en sennileg er skýring
próf. Olafs Lárussonar, að átt sé við Brúnastaðaá, sem rennur um
Holtsdal. Þannig liggi saman lönd Brúna og Bárðar og sá síðar-
nefndi hafi numið land niður frá Stíflu, öfugt við frásögn Land-
námu, enda höfðu þeir Nafar-Helgi og Þórður Knappur numið
Stíflu að fullu.7 Ef þessi skýring reynist rétt, er líklegt, að Bárður
hafi búið á Holti (Stóra-Holti). Að lokum er talinn Úlfur víking-
ur, sem numið hefur Úlfsdali,8 sem nú eru utan marka Fljóta.
Hinn mikli Fljótahreppur hefur snemma skipzt í tvennt, og
sú skipting hefur bæði verið landfræðileg og til ýmiss hagræðis.
Annars vegar voru Ausmrfljót, samnefndur dalur og strandlengj-
an út að Almenningnum. Ausmrfljót skiptast innbyrðis í þrennt,
fremst er Stífla, þá Miðfljót frá Stífluhólum að Brúnastaðaá, og yzt
Niðurfljót, frá Brúnastöðum að Almenningsnöf. Vestari hluti
Fljótahrepps nefndist í heild Vesturfljót, og skiptast þau í Flóka-
dal, Bakka og landið milli Flókadalsár og Miklavatns, sem einnig
nefnist Vesturfljót.9 Ströndin milli Almenningsnafar og Stafár
liggur að stórri vík, Fljótavík eða Fljótagrunni. Inn úr Fljótavík
ganga nokkrar smærri víkur. Yztar eru Torfnavík, Selvík og
Hauðnavík. Þá er Hraunakrókur næstur, en hann var aðalverstöð
Ausmrfljótamanna. Vestan Miklavatns er Haganesvík og Mósvík
vestast í henni, en úr báðum þeim víkum smnduðu Vesturfljóta-
menn mikið útræði. A Bökkum eru Fúlavík, Helguvík, Reykjar-
hólsvík og Kolluvík.10
Lendingar í Fljótum eru alls staðar slæmar, enda stendur sveit-
110