Skagfirðingabók - 01.01.1975, Blaðsíða 144
SKAGFIRBINGABOK
bréfi til amtmanns 19- júlí, spurt, hvort hreppsmenn megi ekki
nota helgar til veiða, bæði vegna misgóðra gæfta í miðjum vikum,
og svo sé ástandið svo illt til landsins og skepnufellir mikill, að
sjávarafli einn geti bjargað því, að hreppurinn komist af án með-
gjafar.12 Ekki er kunnugt um svar amtmanns við þessu, en trú-
legt er, að hann hafi veitt þetta leyfi vegna harðindanna í landi.
Á aðalvorfundi hreppsnefndar Holtshrepps, sem haldinn var
að Hraunum 23. júlí 1881, var rætt um skipulag og reglur við
fiskveiðar á fiskimiðum hreppsins. Hér var um að ræða veiðar á
þorski, sem aðallega hafði verið tekinn á handfæri, en eftir að
línuveiðar fóru að tíðkast, komu upp raddir andstæðar þessari
tækni, og sú trú var breidd út, að línan eyðilegði fiskimið og væri
vont veiðitæki. Bókun hreppsnefndar þetta varðandi, svo og fleira
af svipuðum toga, er svofelld:
„Kom til umræðu að hagfelt mundi að fá samþykt um
fiskiveiðar á opnum skipum hjer í veiðistöðvum hrepps-
ins, samkvæmt lögum 14. des. 1877, til að fá fastákveðið,
hvort leyfilegt skyldi að brúka línu (lóðir) fyrir þorsk
jafnframt handfæri jafnvel þó sannreynt væri að lína
spilti fyrir handfæraveiði; fá fastákveðinn formannshlut,
hlutarbætur skipverja, strabbaskarð af hákalli og að lík-
indum fleira.“ 13
Oddvita var falið að kanna málið, og sendi hann sýslunefnd
tillögur sínar með bréfi 24. desember sama ár. Þann 23. febrúar
1882 sendi sýslunefnd bréfið til baka til meðferðar á almennum
fundi hreppsbúa.14 Á öðrum sýslunefndarfundi, sem hófst 1. nóv-
ember um haustið, komu tillögur um fiskveiðisamþykkt í Fljót-
um aftur fyrir nefndina og nú með áorðnum breytingum á al-
mennum hreppsfundi. Sýslunefnd samþykkti þær „í einu hljóði“
og sendi þær amtmanni til löggildingar.3 5
Þá var komin fiskveiðisamþykkt yfir Fljótamið, en næsta fisk-
veiðamál Fljótamanna var landhelgismál. Að vísu var ekki um að
ræða frumkvæði Fljótamanna í því efni, en á sýslufundi 12. júní
1884 var lagt fram bréf amtmanns um fiskveiðar í landhelgi við
142