Skagfirðingabók - 01.01.1975, Side 176
SKAGFIRBINGABÓK
síðasta framtali; það sýnir sig líka, að gjöld vesturhlutans til
sveitarþarfa hafa verið lítið eitt meira en 2A næstl. haust. —
Einsog sjá má mætti fá nákvæmari mælikvarða til að skipta eptir
ómagaþunga hreppsins helduren að gera austurhlutan Y$ og vest-
urhlutan 7/5, en þareð nokkrum eigum er að skipta aptur á móti,
hjerumbil 800 kr. — þá gerir það í sjálfu sjer lítið til að leita
uppi nákvæmari mælikvarða.
Ef farið yrði að skipta hreppnum ætti að setja 5 eða 7 manna
nefnd til að semja nákvæmar reglur um skiptinguna, og ætti
oddamaðurinn að vera greindur og glöggur utanhreppsmaður.
Ur því mál þetta er nú komið í hreifingu ætti að ráða því til
algjörðra úrslita, af eða á, sem allra fyrst. Ef menn verða á því að
skipta, þá verða þau (skiptin) með svofeldu móti bygð á því, er frá
hvorugri hlið verður rengt, eða getur valdið nokkrum ágreiningi,
þareð ekkert var farið að hreifa við málinu þegar seinasta framtal
og niðurjöfnun var gjört. Þarámóti ef því væri frestað óútkljáðu
og menn ættu það yfir höfði sjer, gæti máskje mannlegur breisk-
leiki rutt sjer til rúms í því, að tortrygni vaknaði hjá öðrum eða
báðum málspörtum um þá gjörendur, sem skiptin yrðu miðuð við;
en það má telja sjálfsagt, að skiptin yrðu að mestu eða öllu miðuð
við ástandið á þeim tíma, sem þau yrðu gjörð á. Einnig er nú kvað
best fallið að útkljá málið með atkvæðagreiðslu þareð búendur
eru alveg jafnmargir í báðum hreppspörtunum. 42 í hvorum fyrir
sig.----------“3
Hinn 14. febrúar 1880 var fundurinn um skiptingu hreppsins
haldinn að Stórholti, og greiddu bændur atkvæði um málið. Fylgj-
andi skiptingu voru 32 atkvæði, öll úr Austurfljótum, en á móti
9 atkvæði, öll úr vesturhlutanum, en tillagan var sú, að sóknir
réðu hreppamörkum, annars vegar Barðssókn og hins vegar Holts-
og Knappstaðasóknir. Borin var undir atkvæði tillaga um breytta
skipan og þá stækkun vesturhlutans, en hún var felld með 22 at-
kvæðum austanmanna gegn 8. Því taldist málið tekið af dagskrá
um sinn vegna missættis.4
174