Skagfirðingabók - 01.01.1975, Blaðsíða 208
SKAGFIRBINGABÓK
Héraðsskjalasafnið á gott mikrofilmusafn, þar sem uppistaðan
er mormónafilmurnar svokölluðu. Þær eru af öllum kirkjubókum,
fermingarskýrslum og manntölum á landinu, Ævum lærðra manna,
Prestaævum, Islenzku fornbréfasafni og fleiri stórverkum, óprent-
uðum sem prentuðum, og nú er verið að filma fyrir safnið Dóms-
málabækur Skagafjarðarsýslu frá upphafi.
Hvað viðkemur þeim vélum, sem skjalasöfnum er nauðsyn að
eiga, þá á safnið frá fyrri tíð tvær ófullkomnar filmulesvélar, svo
og góða ljósritunarvél, sem er endurnýjun eldri vélar, auk þess
sem fyrir nokkrum árum voru fest kaup á fullkomnustu filmu-
lesvél, sem á var völ, eða „reader printer“ vél, er gerir kleift að
ljósrita af filmum eftir þörfum. Mun þetta hafa verið fyrsta vél
sinnar tegundar, er íslenzkt safn eignaðist. Þarf vart að geta, að
jafnfullkomin vél sem þessi var alldýr í innkaupi og kostaði, er
keypt var, þrítugfalt ríkisframlagið til safnsins. Skal að öðru leyti
ekki fjölyrt um rekstrarfé þessa safns eða annarra, enda augljóst
hver hlutur ríkisvaldsins er í samanburði við smærri rekstraraðil-
ana, sýslu og kaupstað. Einnig ber að geta þess, að Menningar-
sjóðir Sparisjóðs Sauðárkróks og Kaupfélags Skagfirðinga hafa
stutt safnið með fjárframlögum.
Þá skal drepið á það atriði, er varðar tengsl héraðsskjalasafns-
ins og bókasafnsins. Auðsætt er, að eigi héraðsskjalasöfn að koma
að tilætluðum notum við fræðistörf, þarf þar að finnast eða vera
aðgangur að dágóðu handbókasafni. En héraðsskjalasöfnin eru
flest svo ung að árum og févana, að útilokað er að kaupa til þeirra
mjög dýrar bækur eða bókaflokka, sé nefnd rit að finna í bóka-
söfnum í nábýli við þau. Væri í reynd langæskilegast, að söfn-
unum væri þannig fyrirkomið, að þau hefðu sameiginlegan lestrar-
eða vinnusal, enda sömu reglur, er gilda um gesti í báðum söfn-
um. Héraðsskjalasafn Skagfirðinga hefur nokkra reynzlu af þeim
vandkvæðum, er stafa af ónógu handbókasafni. I Safnahúsinu á
Sauðárkróki eru lestrarsalir fyrir hvort safn, og enda þótt til skjala-
safnsins hafi verið keypt allmörg rit, þarf alltaf aðra stundina að
leita til bókasafnsins.
Héraðsskjalasafnið er opið lágmarkstíma að lögum, sex klukku-
206