Morgunblaðið - 14.12.1986, Síða 83
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1986
Úr skipasmíðastöð Þorgeirs og Ellerts hf.
Morgunblaðið/JG
Akranes:
Raðsmíðaskip
senn afhent
NÚEER senn að líða að því að
hið nýja skip sem hefur verið i
smíðum hjá Þorgeir & Ellert hf.
á Akranesi verði fullbúið. Skipið
er eitt hinna svokölluðu
raðsmíðaskipa sem hafa verið að
veltast í kerfinu á undanförnum
árum.
Það er fyrirtækið Ljósavík hf. í
Þorlákshöfn sem keypt hefur skipið
og mun það verða gert út á rækju-
veiðar enda hefur það búnað að
fullkomnustu gerð til slíkra veiða.
IV i
Skipið var tekið úr húsi nú fyrir
skömmu og er unnið að lokafrá-
gangi. Það mun verða sjósett um
miðjan janúar og áætlað er að skip-
ið verði afhent eigendum í febrúar.
Þetta er raðsmíðaverkefni nr. 2
hjá Þorgeir & Ellert hf. Fyrra skip-
ið, Hafnarey SU, var afhent í byijun
árs 1983. Þetta skip er að því leyti
breytt frá fyrra skipinu að það hef-
ur verið lengt um 6,4 metra og er
eins og fyrr sagði sérstaklega út-
búið til rækjuveiða.
JG
MEÐ EINU SÍMTAU
er hægt að breyta innheimtuað-
ferdinni. Eftir
argjötdin sku
viðkomandi greiðslukortareikn-
ing manaöarlega.
mwa
EBil
SIMINNER
691140
691141
Síðasta bók Agöthu Christie á íslensku
BÓKAÚTGÁFAN Breiðablik hefur sent
frá sér bókina Þriðja stúlkan eftir
Agöthu Christie. Þriðja stúlkan er
síðasta verk Agöthu Christie og kemur
nú út í fyrsta sinn á íslensku i þýðingu
Elísar Mar rithöfundar.
Um innihald bókarinnar segir í frétt frá
forlaginu: „Ung stúlka, grunuð um morð,
leitar til leynilögreglumannsins Hercule
Poirot. Hún missir kjarkinn í miðju sam-
tali og rýkur út. Poirot ákveður að komast
til botns í máli hennar, heimsækir Rest-
aricks 'fólkið og kemst að raun um að þar
er ekki allt með felldu. Hvert er leyndar-
mál blóðuga Qaðurhnífsins? Eitraði Norma
fyrir stjúpu sína, eða var hún aðeins leik-
soppur annarra? Eitt er víst — það var
morð í uppsiglingu — eða var það kannski
þegar að baki?“
Himvr
Bergið kiifið. Minn-
ingar veiðimannsins
Hlöðvers Johnsens.
Úteyjalíf náttúrubams
og náttúruskoðara, sjó-
mennska með Binna í
Gröf, Vestmannaeyja-
gos. Einnig fróðleiks-
brunnur um horfna
þjóðhætti Eyjamanna.
SÓLARGEISLI í SKAMMDEGIIMU
Kúbanska hljómsveitin
SIERRA MAESTRA
heldur tvenna tónleika á Borginni
á mánudag og miðvikudag.
Ljúf og seiöandi salsa-sveifla beint úr Karíbahafinu.
Viðburður í tónlistarlífinu:
Fyrsta heimsókn kúbanskra tónlistarmanna til íslands.
Rúmbutakturinn hristir úr ykkur vetrardrungann
og liðkar mjaðmaliðina.