Morgunblaðið - 11.04.1987, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.04.1987, Blaðsíða 1
80 SIÐUR OG LESBOK STOFNAÐ 1913 85. tbl. 75. árg. LAUGARDAGUR 11. APRIL 1987 Prentsmiðja Morgunblaðsins Noregur: Aukínni orkuþörf mætt með gasi? Osló, Reuter. NORÐMENN lögðu í gær til að hraðað yrði framkvæmdum við að vinna gas úr landgrunninu undan Noregsströndum til að anna aukinni eftirspurn eftir rafmagni innanlands. Embættismenn stjómarinnar sögðu að með þessari áætlun yrði að nokkm leyrti snúið baki við vatns- orku til rafmagnsframleiðslu. Bandaríkin: Landgöngulið- ar í Leningrad kvaddir heim Washington, Reuter, AP. SEX landgönguliðar, sem gæta skrifstofu bandaríska ræðis- mannsins í Leningrad, verða kvaddir heim til Bandaríkjanna á næstunni vegna rannsóknar á njósnahneykslinu í bandaríska sendiráðinu í Moskvu, sem upp komst í janúar. Síðan hafa fjórir landgönguliðar verið handtekn- ir. Bandaríkjamenn höfðu þegar til- kynnt að þeir 28 landgönguliðar úr sjóhemum, sem gæta sendiráðs- ins í Moskvu, verði kvaddir heim. Tveir landgönguliðar hafa verið sakaðir um njósnir í sendiráðinu í Moskvu og einn er í gæsluvarðhaldi fyrir að hafa látið undir höfuð leggj- ast að greina frá samskiptum starfsbræðra sinna við sovéskar konur í Moskvu. Sá fjórði er gmnað- ur um að hafa stundað njósnir hjá ræðismanninum í Leningrad. í tilkynningu bandaríska vamar- málaráðuneytisins sagði að það væri varúðarráðstöfun að kalla landgönguliðana í Leningrad heim. Þeir væm ekki gmnaðir um að hafa brotið af sér. í skýrslu til þingsins leggur stjórnin til að árið 2000 verði gas notað til að framleiða tuttugu pró- sent af því rafmagni, sem Norð- menn þurfa, og verði borað eftir gasinu undan ströndum landsins, að því er Ame 0ien, olíu- og orku- málaráðherra, sagði á blaðamanna- fundi í gær. „Þessi skýrsla gæti haft í för með sér að framgangi vatnsvirkjun- ar í Noregi ljúki fimmtán ámm fyrr en ætlað var,“ sagði ráðherrann. Stjómin hefur lagt til að reist verði tvö raforkuver, sem knúin verði gasi, á næstu fimm ámm. 0ien sagði áð aukin nýting vatns- orku hefði ekki nægt til að anna eftirspum og því væri hætta á orku- skorti ef ekkert yrði að gert. Reuter Raisa Gorbacheva, eiginkona Gorbachevs Sovétleiðtoga, virðir fyrir sér gull og gersemar í dómkirkju heilags Vitusar í kastala í Prag. A meðan ræddi Mikhail Gorbachev við tékkneska ráðamenn. Ræða Gorbachevs í Prag: Vill hefja viðræður um skammdrægar flaugar Reagan ítrekar boð um leiðtogafund í Bandaríkjunum Prag, Los Angeles, London, Reuter, AP. MIKHAIL Gorbachev, aðalritari sovéska kommúnistaflokksins, reyndi í gær að draga úr áhyggj- um vestrænna ríkja vegna styrkleika Sovétmanna á sviði kjarnorkuvopna og hefðbundins herafla með því að leggja fram tvær tillögur um afvópnun í Evr- ópu. Ronald Reagan Bandaríkja- forseti sagði í ræðu, sem hann flutti í Los Angeles í gær, að það væri greinilegur möguleiki á árangri í viðræðum um skamm- Reuter Viðbúnaður vegna réttarhalda yfir Barbie Nú er að ljúka undirbúningi réttarhalda yfír stríðsglæpamanninum Klaus Barbie í borginni Lyon í Frakklandi. Miklar breytingar hafa verið gerðar í dómshöllinni og verður m.a. sérstakur klefi með skot- heldu gleri fyrir Barbie, sem gekk undir nafninu „slátrarinn frá Lyon“ og sést hann til vinstri á myndinni. Gegnt hinum ákærða verða bekkir fyrir blaðamenn. Réttarhöldin hefjast 11. maí. drægar flaugar. Hann bætti við að Sovétmenn reyndu að nota viðræðurnar til að reka fleyg á milli Bandaríkjamanna og bandamanna þeirra í Evrópu og Asíu. Reagan sagði að njósnir Sov- étmanna í bandaríska sendiráðinu í Moskvu væru dæmigerðar fyrir framferði sovéskra stjórnvalda, en mæltist einnig til þess að leiðtoga- fundur yrði haldinn í Bandaríkjun- um. Forsetinn sagði að ekki væri ástæða til að gera sér rellu vegna samskipta risaveldanna um þessar mundir. Gorbachev lagði til að hafnar yrðu viðræður um að fækka skammdrægum flaugum í Evrópu, en vestræn ríki halda fram að Sov- étmenn hafi mikla yfirburði á því sviði. Gennady Gerasimov, talsmaður sovéska utanríkisráðuneytisins, sagði að tillögurnar yrðu lagðar fyrir George Shultz, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, þegar hann kemur til Moskvu í næstu viku til viðræðna um takmörkun vígbúnað- ar. Charles Redman, talsmaður Shultz, sagði að utanríkisráðherr- ann myndi ræða tillöguna um viðræður um skammdrægar flaugar við Gorbachev í Moskvu. Bretar og Vestur-Þjóðvetjar sögðu að skoða þyrfti tillögur Gorb- achevs gaumgæfilega. Gorbachev kvaðst hafa gert sam- komulag við Austur-Þjóðverja og Tékka um að fjarlægja allar skammdrægar flaugar í Austur- Þýskalandi og Tékkóslóvakíu, sem komið var fyrir um leið og Pershing 2 og stýriflaugum í Vestur-Evrópu, að því tilskildu að samkomulag næðist um meðaldrægar flaugar. Aftur á móti yrðu skammdrægar flaugar í áðumefndum ríkjum tekn- ar niður án tillits til framvindu viðræðna um skammdrægar flaug- ar. Gorbachev tilkynnti einnig að Sovétmenn hefðu hætt framleiðslu efnavopna. Hann sagði að efnavopn væru ekki geymd utan landamæra Sovétríkjanna. Hann sagði að hafist hefði verið handa við að reisa verk- smiðju til að eyðileggja efnavopn. Carrington lávarður, fram- kvæmdastjóri Atlantshafsbanda- lagsins, sagði að það væri mjög gott ef ummæli Gorbachevs leiddu til þess að samkomulag næðist um bann við hemaði með efnavopnum. Sjá „Shultz fer til Moskvu ...“ á síðu 34. Vestur-Evrópu sambandið: Sjálfstæðari Evrópu í afvopnunannálum Moskvu, Reuter. SENDINEFND Vestur-Evrópu- sambandsins (WEU), sem stödd er í Moskvu, kvaðst í gær hafa hvatt til þess á fundum með sov- éskum embættismönnum að Evrópuríki hefðu aukið vægi í viðræðum risaveldanna um víg- búnaðarmál. WEU er samtök þingmanna um varnarmál og hafa þau höfuðstöðvar í París. Jean-Marie Caro, franskur þing- maður og forseti samtakanna, sagði að ætla mætti af viðbrögðum emb- ættismannanna að Sovétmenn fögnuðu hugmyndinni um styrkari Evrópu. Hann sagði að embættismennim- ir hefðu lagt áherslu á að kjamorku- vopn Breta og Frakka gætu ekki staðið fyrir utan afvopnunarviðræð- ur Sovétmanna og Bandaríkja- manna eftir að samið hefði verið um að fjarlægja meðaldrægar kjamorkuflaugar stórveldanna í Evrópu. Stjómvöld í Moskvu og Wash- ington hafa lagt fram tillögur um að taka niður og fjarlægja allar meðaldrægar flaugar sínar í Evrópu og takmarka fjölda kjarnaodda við hundrað annars staðar. Ekki hefur verið fjallað um flaugar Frakka og Breta í þessum viðræðum. Ummæli Caros sigla í kjölfarið á umfjöllun Frakka, Breta og Vestur- -Þjóðverja um takmörkun vígbún- aðar. Stjómir þessara ríkja óttast að Vestur-Evrópa verði berskjölduð fyrir skammdrægum flaugum Sov- étmanna ef samkomulag um að fjarlægja meðaldrægar flaugar í Evrópu verður undirritað.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.