Morgunblaðið - 11.04.1987, Blaðsíða 5
MORGUNBLABIÐ, LAUGARDAGUR 11. APRÍL 1987
5
Veik kona sótt á haf út
ÞYRLA vamarliðsins á Keflavíkurflugvelli sótti í gær veikan
sjómann um borð í sovéskan verksmiðjutogara. Togarinn var
staddur um 240 sjómUur suðvestur af Reykjanesi.
Laust eftir klukkan 11 í gær barst Slysavamarfélaginu beiðni
um aðstoð þar sem einn sjómannanna um borð, sem er 52 ára
gömul kona, hefði fengið hjartaáfall. Þar sem togarinn var of
iangt frá landi til að þyrla landhelgisgæslunnar gæti farið, var
leitað til varnarliðsins. Þyrla og eldsneytisvél lögðu af stað um
kl. 12.30 og um kl. 14.45 var sjúklingurinn kominn um borð.
Þyrlan lenti við Borgarspítalann í Reykjavík kl. 16.50.
Yegir il}a farnir
yegna fiskflutninga
Ólafsvík.
MIKILL afli báta frá Snæfells-
nesi hefur valdið því að vegir þar
em illa famir, því vörubílar hafa
verið í stöðugum flutningum með
aflann til Suðurnesja og norður
á land.
Frá því á máriudag hafa 12-1300
lestir af þorski komið á land í Ólafs-
vík og á Rifi. Mikið er af aðkomu-
bátum á Breiðaíjarðarmiðum og
vörubílar hafa tekið aflann og flutt
hann til vinnslu annars staðar á
landinu. Vegurinn á Fróðárheiði er
illa farinn og sömu sögu er að segja
úr Staðarsveit og allt suður fyrir
Hítará. A fimmtudag kepptust
menn við að flytja aflann af ótta
við þungatakmarkanir. Við höfnina
í Ólafsvík og á Rifi voru um 15-20
vörubílar og var keppst við að fylla
þá. Menn höfðu á orði að aðeins
þyrfti brot af aflaverðmæti síðustu
fjögurra daga til að borga lagfær-
ingu á vegunum. BG
Tillögur um fyrirkomulag á stjóm leitar og björgunar á sjó:
Björgunarstjórnstöð verði
í stjórnstöð Almannavarna
NEFND sem dómsmálaráðherra
skipaði hefur komist að þeirri nið-
urstöðu að aðalstjórastöð fyrir leit
og björgun á hafinu umhverfis
ísland skuli vera staðsett í stjóra-
stöð Almannavaraa í kjallara
lögreglustöðvarinnar i Reykjavik
og þriggja manna yfirstjóra henn-
ar verði mynduð af fulltrúum
Landhelgisgæslunnar, Slysavama-
félags íslands og Póst og síma-
málastofnunar þar sem fulltrúi
Landhelgisgæslu hafi úrslitavald.
Miðað er við tveggja ára reynslu-
tíma á þessa tilhögun og gerir
dómsmálaráðherra ráð fyrir að
viðræður hefjist strax um skipan
fulltrúa í yfirsijórnina.
ísland hefur ekki enn staðfest al-
þjóðasamkomulag alþjóða siglinga-
málastofnunarinnar frá 1979 um leit
og björgun á sjó, meðal annars vegna
þess að ekki hefur verið uppfyllt skil-
yrði um kerfi sem samræmir leitar-
og björgunaraðgerðir allra björgunar-
aðila og stjómar þeim. Jón Helgason
dómsmálaráðherra skipaði nefnd 23.
febrúar til að gera tillögur um fyrir-
komulag á skipulagi á yfirstjóm og
björgunarstörfum á og við sjó. I
nefndina vom skipaðir Böðvar Braga-
son lögreglustjóri í Reykjavík,
Snæbjöm Jónasson vegamálastjóri
og Þorgeir Pálsson dósent og skilaði
hún skýrslu síðastliðinn þriðjudag.
Tillögur nefndarinnar gera ráð fyr-
ir að þeir tveir aðilar, sem mesta
reynslu hafa í björgunarstörfum hér-
lendis, Landhelgisgæslan og Slysa-
vamafélagið, eigi hvor sinn fulltrú-
ann í yfirstjóm væntanlegrar
stjómstöðvar, en Póst og símamála-
stofnun eigi þriðja fulltrúann í ljósi
þess að fjarskipti og boðskipti um
gervitungl skipi sífellt stærri sess í
björgunarmálum. Meðal annars er
nefnt í skýrslu nefnarinnar öryggis-
kerfi sem alþjóða siglingamálastofn-
unin er að þréa i beinu framhaldi af
alþjóðasáttmálanum frá 1979 þar
sem gert er ráð fyrir að innan fárra
ára verði öll skip búin nýjum neyðar- •
baujum sem sendi sjálfkrafa út merki
um leið skip veltur eða sekkur. Þessi
merki nema gervihnettir og senda
þau áfram svo hægt er að miða út
hvaðan merkin koma. Þá munu flar-
skipti milli lands og skips í auknum
mæli fara fram með gagnasendingum
sem auðveldar að koma upp sjálf-
virkum tilkynningakerfum fyrir skip
og raunar gerir alþjóðasamningurinn
ráð fyrir að aðildarlöndin komi sér
upp slíku kerfi. Verið er að vinna að
slíku kerfí hér á landi hjá Háskóla
íslands.
Nefndin gerir ráð fyrir að yfír-
stjómin komi saman í aðalstjómstöð
til að samræma aðgerðir þegar meiri-
háttar slys verður. Ef yfirstjómin
verður ekki sammála um aðgerðir
skeri fulltrúi Landhelgisgæslunnar
úr. Gert er ráð fyrir að yfirstjómin
geti tilnefnt aðgerðarsljóra sem
stjómi aðgerðum í minniháttar tilvik-
um án þess að yfirstjóm komi saman.
Þá starfi undirstjómstöðvar undir
aðalstjómstöð á tilteknum svæðum
og tilnefndur verði í hverju tilviki
vettvangsstjóri sem stjómar aðgerð-
um á hverjum stað.
Gert er ráð fyrir í tillögum nefndar-
innar að aðalstjórstöðin verði í stjóm-
stöð Almannavama þar sem hún
komist næst því að uppfylla kröfur
alþjóðasamkomulagsins til slíkra
stöðva. Gert er ráð fyrir að undir-
stjómstöðvar, það er stjómstöðvar
Landhelgisgæslu og SVFI sem báðar
em mannaðar allan sólarhringinn,
taki á móti neyðartilkynningum og
geri þá yfirstjóminni viðvart en byiji
tafarlaust að stjóma aðgerðum á sínu
umráðasvæði þar til aðalstjómstöð
tekur við stjóminni.
Gert er ráð fyrir að umráðasvæði
Landhelgisgæslunnar sé á hafinu
umhverfis ísland en umráðasvæði
SVFÍ nái til strandlengjunnar og
svæðisins næst ströndinni. Náin
tengsl verði síðan á milli þessara
stjómstöðva og aðalstjómstöðvar
Flugmálastjómar fyrir leit og björgun
loftfara og á sama hátt verði náið
samband milli aðalstjómstöðvar og
fjarskiptastöðvarinnar í Gufunesi.
í greinargerð með skýrslunni segir
að nefndin hafi lagt áherslu á að sú
aðstaða og þau tæki sem fyrir em
séu nýtt. Þó sé óhjákvæmilegt að
ríkið leggi fram talsverða fjármuni
til að uppfylla kröfur alþjóðasam-
þykktarinnar frá 1979 þar sem bæta
þurfi við búnað, bæði í aðalstjómstöð
og undirstjómstöð, einkum til fjar-
skipta, gagnavinnslu og gagnaflutn-
ings, auk þess sem rekstur yfirstjóm-
arinnar hafi í för með sér nokkum
kostnað.
• g.4' *>
’ó'- Á
Au
fCrHÚlJO n
Við brjótum þá
yn Baráttukveðjur
Þorsteinn
Eggert
Ámi
SLÁLFSTÐISFLOKKURINN Á SUÐURLANDI