Morgunblaðið - 11.04.1987, Blaðsíða 44
I
44
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. APRÍL 1987
Neskirkja 30 ára
á sunnudaginn
Hákan Rudner
NESKIRKJA á vígsluafmæli
næstkomandi sunnudag, 12.
apríl. Kirkjan var vígð á pálma-
sunnudag árið 1957, af þáverandi
biskup, herra Asmundi Guð-
mundssyni, en fyrsti sóknar-
prestur safnaðarins, séra Jón
Thorarensen, þjónaði fyrir alt-
ari. í tilefni afmæiisins nk.
sunnudag mun herra Pétur Sig-
urgeirsson prédika við guðs-
þjónustu kl. 14.00. Kór
kirkjunnar syngur undir stjórn
organistans Reynis Jónassonar.
Einnig munu Guðrún Birgisdótt-
ir og Martial Nardeau leika á
Málverkasýning í ráð'
húsi Bolungarvíkur
Bolungarvik. ^ J
ÁLFHILDUR Ólafsdóttir hefur
opnað málverkasýningu í ráð-
húsinu í Bolungarvik og verður
sýningin opin til 12. apríl nk.
mOli kl. 14.00-18.00. A þessari
sýningu eru 33 olíumálverk sem
AlfhUdur hefur málað á sl. tveim-
ur árum.
Álfhildur hefur einu sinni áður
verið með_ einkasýningu, það var
sl. haust í Ásmundarsal í Reykjavík,
en hún hefur átt myndir á mörgum
samsýningum í Ameríku þar sem
hún er búsett.
Álfhildur er fædd í Bolungarvík
og átti hér heima til 11 ára aldurs,
flutti þá til Ísaíjarðar og fjórum
árum seinna til Reykjavíkur. í
Ameríku eða nánar tiltekið í St.
Petersburg í Florída hefur Álfhildur
búið síðan 1962.
Við opnun sýningarinnar færði
Álfhildur Bolungarvíkurkaupstað
að gjöf mynd sem hún hefur málað
af Bjöggu gömlu, sögufrægri per-
sónu sem bjó hér í Bolungarvík
tílemktm
flautu. Núverandi sóknarprest-
ar, séra Frank M. Halldórsson
og séra Guðmundur Óskar Ólafs-
son, þjóna fyrir altari. Að lokinni •
guðsþjónustu mun Stefán Jóns-
son fyrrum formaður sóknar-
nefndar rifja upp þætti úr
byggingarsögu hússins og kór
kirkjunnar syngja. Núverandi
formaður sóknarnefndar er
Baldur Jónsson.
Neskirkju teiknaði Ágúst Pálsson
húsameistari, en á meðal þeirra sem
stóðu í fyrirsvari af hálfu safnaðar-
ins á meðan á byggingu stóð má
nefna Stefán Jónsson, Einvarð Hall-
varðsson og Alexander Jóhannes-
son. Húsið tekur 5-6 hundruð
manns í sæti ef lausir stólar eru
nýttir, auk rýmis í safnaðarheimili,
þar sem fjölþætt starf hefur farið
fram um árin og er nú sem stendur
nýtt alla daga vikunnar.
Endurbætur hafa staðið yfir að
undanfömu á kirkjunni, nýtt kopar-
þak sett á hana, kirkjuskipið
hreinsað og málað og teppi end-
umýjuð. Fyrir liggur víðlíka verk á
safnaðarheimilinu á komandi sumri.
Morgunblaöið/Gunnar
Frá afhendingu myndarinnar, Álfhildur Ólafsdóttir og Guðmundur
Kristjánsson, bæjarstjóri Bolungarvíkur.
Kees Visser sýnir í Nýlistasafninu.
fyrir um fjörutíu ámm.
Bjagga gamla, sem hét fullu
nafni Aðalbjörg Þórðardóttir, var
einstæð kona, ákaflega sérvitur og
treg að tjá sig um sína hagi, en
hún hafði þann starfa, sjálfskipuð,
að bera vatn í nokkur hús á grund-
unum. Fyrir þetta verk vildi hún
aldrei taka nokkra greiðslu aðra en
þá að alltaf þáði hún kaffisopa og
var haft á orði að líklega lifði hún
á kaffi eingöngu, en þannig var líf
Bjöggu gömlu ár eftir ár. Kom hún
í sömu húsin, skilaði sama vatns-
skammtinum, drakk sinn kaffisopa
og talaði við sama fólkið. Meðal
þeirra húsa, sem Bjagga kom með
vatn í, var heimili listakonunnar og
þess vegna er Bjagga gamla henni
svona minnisstæð.
Guðmundur Kristjánsson, bæjar-
stjóri Bolungarvíkurkaupstaðar,
veitti gjöfínni viðtöku og flutti Álf-
hildi innilegar þakkir.
— Gunnar.
Hið íslenska
sjóréttarfélag:
Fyrirlestur
í Lögbergi
Fræðslufundur í hinu ís-
lenska sjóréttarfélagi verður
haldinn í dag, laugardaginn
11. apríl, í stofu 103 í Lög-
bergi og hefst hann kl. 14.00.
Kathleen S. Goddard, lektor
við háskólann í Exeter í Eng-
landi, flytur fyrirlestur sem hún
nefnir „The Torrey Canyon and
the Amaco Cadiz — What Did
We Leam?“
Kathleen S. Goddard er 6.
erlendi gesturinn sem heldur
erindi á vegum félagsins. Sér-
svið hennar er sjóréttur og
verslunarréttur. Hún hefur sér-
hæft sig í lögfræðilegum
vandamálum sem snerta meng-
un sjávar af völdum skipa.
Að erindinu loknu verða fyrir-
spurnir og umræður.
Fundurinn er öllum opinn.
Ungir norrænir einleik-
arar í Norræna húsinu
FYRSTU tónleikamir í tónleika-
röð Norræna hússins Ungir
norrænir einleikarar verða
haldnir sunnudaginn 12. apríl nk.
og hefjast þeir kl. 16.00. Þessi
tónleikaröð er hliðstæð þeirri,
sem Norræna húsið gekkst fyrir
árið 1985. Þar komu fram ungir
tónlistarmenn, sem áunnu sér
rétt til þess að taka þátt i þriðju
200. sýn-
inginá
Landmíns
föður
Stríðsárasöngleikurinn Land
míns föður eftir Kjartan Ragn-
arsson verður sýndur í 200. sinn
í Iðnó í kvöld, laugardag.
Land míns föður var frumsýnt í
Iðnó 4. október 1985 og hefur því
verið á flölunum í nærfellt tvö heil
leikár og vinsældimar verið miklar.
Uppselt hefur verið á nánast hveija
sýningu. Áhorfendur eru orðnir yfír
40.000 og er söngleikurinn því kom-
inn í hóp allra vinsælustu leikrita
hjá Leikfélaginu frá upphafí.
Aðeins fímm sýningar eru eftir
hérlendis. Síðustu sýningamar
verða á erlendri grundu. Leikfélagi
Reykjavíkur hefur verið boðið að
koma með sýninguna á leiklistar-
hátíð í Svíþjóð nú í vor og er allt
útlit fyrir að hægt verði að þiggja
það boð. .
Gísli HaUdórsson í hlutverki hins
drykkfelda og trúheita Péturs
postula i söngleiknum Land mins
föður sem sýndur verður í 200.
sinn i kvöld.
Rækju landað
á Siglufirði
Siglufirði.
Undanfama daga hafa eftirtalin
skip landað rælq'u á Siglufírði:
Skjöldur um 15 tonnum, Súlan 25
tonnum og Hákon 21 tonni. Einnig
hefur Sigluvík landað 130 tonnum
af botnfíski. _ Matthías
Sýnir í
Nýlista-
safninu
OPNUÐ var sýning á verkum
eftir Kees Visser föstudaginn 10.
apríl sl. Sýningin er að hluta til
byggð á verkum eftir Einar Jóns-
son, myndhöggvara, og ber
heitið Tileinkun.
Sýningin er opin á virkum dögum
frá kl. 16.00-20.00 og um helgar
frákl. 14.00-20.00. Sýningunni lýk-
ur annan í páskum.
tónlistarhátíð Sambands nor-
rænna tónlistarháskóla (Nordisk
Konservatorierád) í Osló 1984,
en aðeins framúrskarandi tón-
iistarfólk hefur möguleika á að
leika á þessum tónlistarhátíðum.
Að þessu sinni sækir Norræna
húsið tónlistarfólkið til fjórðu tón-
listarhátíðarinnar, en hún var
haldin í Helsinki í fyrra. Fyrstur
kemur fram sænskur fíðluleikari,
Hákan Rudner, en hann kom raun-
ar fram fyrir hönd Danmerkur í
Helsinki. Hann er rúmlega tvítugur
og lærði á fíðlu frá átta ára aldri
í Svíþjóð, en frá árinu 1981 stund-
aði hann nám við Konunglega
danska tónlistarháskólann og lauk
þaðan einleikaraprófi 1986. Hann
hefur tekið þátt í fjölmörgum meist-
aranámskeiðum hjá heimsfrægum
tónlistarmönnum og haldið tónleika
víða um lönd, bæði sem einleikari
og með kammersveitum. Meðal
annars má nefna, að hann er einn
stofnenda kammersveitarinnar
Casuale.
Á tónleikunum á sunnudaginn
leikur Hákan Rudner Rapsódíu nr.
1 eftir Béla Bartók, sónötu eftir
Ravel og sónötu í b-moll eftir
Brahms. Undirleikari er Erik Karl-
berg.
Tónleikarnir heflast sem fyrr
segir kl. 16.00 á sunnudaginn og
aðgöngumiðar verða seldir við inn-
ganginn.
Næstu tónleikar í röðinni verða
haldnir sunnudaginn 26. apríl í
Fríkirkjunni í Reykjavík. Þar leikur
fulltrúi Svíþjóðar, Gunnar Iden-
stam, á orgel.
Neskirkja.