Morgunblaðið - 11.04.1987, Page 16

Morgunblaðið - 11.04.1987, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. APRÍL 1987 WALLASSE TING Myndlist Bragi Ásgeirsson í nýinnréttuðum sýningarsal á Hringbraut 119 stendur yfír sýn- ing á nokkrum málverkum og allmörgum grafík- og veggmynd- um eftir Wallasse Ting. Listamaðurinn er vel kunnur hér síðan Listasafn íslands kynnti verk hans á listahátíð fyrir nokkr- um árum. Wallasse Ting er öllu fremur þekktur fyrir ástþrungnar myndir af konum og rekst maður á myndir hans víða í útlöndum. Hann virðist atkvæðamikill og harðduglegur við að kynna list sína og hefur sýnt í mjög virtum sýningarsölum beggja vegna Atl- antshafsins svo og í Austurlönd- um fjær, þaðan sem hann er ættaður. Pentskúfur listamannsins er leikandi og léttur og hann töfrar fram sterk áhrif í mjög fáum dráttum og fyrir það mun hann vera kunnastur. Þá er yfir mynd- um hans viss yndisþokki og austurlenzk litadýrð er hrífur, en einnig á hann það til að sletta litn- um og nota frekar ódýr brögð, sem dregur úr áhrifunum og enn frek- ar rýrir það áhrifín hve keimlíkar myndimar eru. Þannig séð verða þær margar leiðigjamar í lengdina og missa erótísk áhrif sín, sem þó geta verið býsna mikil við fyrstu kynni. Wallasse Ting er fjarska lipur teiknari, svo sem fram kemur í bestu myndum hans og um leið hefur hann næmt auga fyrir áhrifamætti lita. En honum virð- ast mjög vel ljós takmörk sín sem listamanns og reynir því hvers konar tæknileg hliðarstökk til að vega þau upp, en hér bregst hon- um einmitt bogalistin og ekki bætir úr skák hve gríðarlega af- kastamikill hann er á þröngu sviði svo að helst minnir á verksmiðju. Hinar lostafullu fijósemisgyðj- ur hans hafa ekki aðeins fagra, tælandi ásjónu heldur og einnig litrík sköp, sem ekkert frekar er verið að fela en vel málaðar varir né tælandi augnskugga. Hér er allt, stórt og smátt, ást- inni vígt og fyrirheitum um meiri ást, stöðuga ást og einna helst holdlega ást — nýja ást á hverri mínútu allan sólarhringinn, vik- una, mánuðinn, árin og eilífðina. — Það er vel til fallið af Galleríi 119 að sýna myndir þessa heims- fræga listamanns í húsakynnum sínum en eins og staðið er að sýningunni svífur. helst til mikill verzlunarbragur yfír vötnum. Framtíðin skýrir svo hvort hér sé um vaxtarverki að ræða eða stefnumörk. Janette Bragman: Sjálfsmynd. í anddyri Norræna hússins hefur verið komið fyrir allmörgum sjálfs- myndum sænskra ljósmyndara og mun sýningin standa út þessa viku. Það mun vera sænska ljósmynd- arasambandið sem stendur að sýningunni í samvinnu við Norræna húsið og ekki kæmi mér á óvart að um farandsýningu sé að ræða. Sýningarskráin er í stóru broti og mun hér komið 32. hefti af Stina Brockman: Sjálfsmynd. „Bild“, tímariti sænska ljósmynd- arasambandsins. Ljósmyndirnar á sýningunni eru flestar frekar litlar og unnar í hina fjölbreytilegustu tækni og hér af- hjúpar hver og einn sjálfan sig með sínu lagi, — sumir á klassískan hátt en aðrir með hinum margvís- legustu tilraunum forma, tjáningar og rýmis. Hér er um atvinnuljós- myndara að ræða og ég segi fyrir SJÁLFSMYNDIR Peugeot 205. „Besti bíll í heimi“ Peugeot 205 hefur verið valinn „besti bíll í heimi" annað árið í röð at hinu virta þýska bílablaði .Auto Motor und Sport". Peugeot 205 sameinar aksturseiginleika, þœgindi, öryggi og spameytni betur en nokkur annar bíll í sínum verðflokki að mati kröfuharðra Þjóðverja. Peugeot205 erframdrifinn, fjöðrun í sérflokki, kraftmikill og hljóðlátur. Komið, reynsluakið og sannfœrist. Verðfrákr.: 318.700.- Peugeot 309. Nýr bíll frá Peugeot Við bjóðum velkominn til íslands nýjan glœsilegan fulltrúa frá Peugeot, Peugeot 309. Miklar rannsóknir og reynsla af Peugeot 205, hárnákvœm vinnubrögð, því hann er að mestu settur saman af vélmennum, tryggja hátœknileg gœði. Peugeot 309 er 5 dyra framhjóladrifinn og með fjöðrun í Peugeot gœðaflokki. Það ásamt eyðslu- grönnum vélum og lágri bilanatíðni gera 309 að bíl fyrir íslenskar aðstœður. \ferðfrá kr.: 376.100-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.