Morgunblaðið - 11.04.1987, Side 23

Morgunblaðið - 11.04.1987, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. APRÍL 1987 Það er aðeins einn Sjálf- stæðisflokkur í þessu landi eftir Halldór Blöndal Á dögunum lét ég þau orð falla í góðum hópi sjálfstæðismanna, að brostið hefði á pólitískt gjörninga- veður. Listabókstafír eru tíu talsins. Sá síðasti þannig til kominn, að skattaleg rannsókn á gjaldþroti Hafskips hf. leiddi til þess að Al- bert Guðm'undsson sagði af sér embætti iðnaðarráðherra og beitti sér fyrir nýrri flokksstofnun í kjöl- farið. Það er út af fyrir sig ekkert við því að gera þegar menn segja skilið við sinn gamla stjommála- flokk. Það er ákvörðun, sem þeir geta ekki kennt öðrum um og hljóta að síðustu að bera ábyrgð á einir gagnvart sínum gömlu samherjum. Til slíks uppgjörs þarf þó ekki að koma, en það er óhjákvæmilegt, ef leiðir eiga að liggja saman að nýju. Það er deginum ljósara, að Þor- steinn Pálsson tók mikla og erfiða ákvörðun, þegar hann gerði Albert Guðmundssyni grein fyrir að hann hlyti að segja af sér embætti iðnað- arráðherra, eftir það sem á undan var gengið. Ýmsir hafa viljað færa þetta Þorsteini til lasts, sem vita- Leiðrétting í Morgunblaðinu 9. apríl sl. þar sem sagt var frá breytingum sem gerðar verða á Laugaveginum var rangt farið með nafn verktakafyrir- tækisins sem tekur að sér verkið. Hið rétta nafn fyrirtækisins er Víkurverk hf. Beðist er velvirðingar á þessu. skuld var viðbúið svo skömmu fyrir kosningar. Sagt er að þægilegra hefði verið að láta málið liggja í þagnargildi fram yfír 25. apríl. En atburðarásin stóð ekki til þess, enda hefði slíkur feluleikur verið í al- gjörri mótsögn við skapgerð Þor- steins sem stjómmálamanns' og persónu. Þorsteinn hlaut að marka sína stefnu sem formaður Sjálf- stæðisflokksins og það gat engum komið á óvart, sem hann þekkti, að hann skyldi ófáanlegur til að sópa þessu viðkvæma og alvarlega máli undir teppið fram yfír kosning- ar. Með slíkri framkomu hefði hann ekki staðið fyrir þeim fyrirheitum, sem hann gaf, þegar hann bauð sig fram í stöðu formanns Sjálfstæðis- flokksins. En stofnun Borgaraflokksins veit ekki aðeins að persónum. Hún snýr einnig að stefnu og lífsskoðun. Og þá kemur fljótt í ljós, að því fer víðs fjarri að hægt sé að setja jafn- aðarmerki milli grundvallarhug- mynda Sjálfstæðisflokksins og Borgaraflokksins. Og kannski ekki að undra í öllum flýtinum, sem á því var að koma Borgaraflokknum saman, þannig að eftir á sér mað- ur, að forystumennimir virðast hafa gleymt að spyija hver annan, hvar þeir væm í pólitík. Alvarlegast er kannski, að þeir forystumenn Borgaraflokksins, sem ættaðir em úr Alþýðubandalaginu, hafa sett mark sitt á stefnuna í öryggis- og vamarmálum. Um þau mál er fjallað af léttúð, í hálfkveðn- um vísum og líkast því sem flokkur- inn sé reiðubúinn að gera þau að verslunarvöm. Það em auðvitað Halldór Blöndal „ Alvarlegast er kannski, að þeir for- ystumenn Borgara- flokksins, sem ættaðir eru úr Alþýðubandalag- inu, hafa sett mark sitt á stefnuna í öryggis- og varnarmálum. Um þau mál er fjallað af léttúð, í hálfkveðnum vísum og líkast því sem f lokkurinn sé reiðubú- inn að gera þau að verslunarvöru. mjög alvarleg tíðindi og óskiljanlegt að einn af forsvarsmönnum Varins lands skuli láta knésetja sig með þessum hætti. Það gefur vísbend- ingu um framhaldið og hlýtur að verka eins og illur fyrirboði gagn- vart sjálfstæðismönnum og þjappa þeim saman. Umijöllun Borgaraflokksins um efnahags- og atvinnumál er mark- laus, en hins vegar fylgir stefnu- skránni ýtarlegur listi um margvíslegar þarfír þegnanna. Þar er mörgu lofað, sem allt kostar peninga, en þeir eru ekki til. Og allra síst auðvitað, eftir að búið er að leggja skattheimtuna í landinu niður í grófum dráttum. Ég hef heyrt það utan af mér í fjölmiðlum og séð á prenti, að þeir í Borggaraflokknum þykist vera annar Sjálfstæðisflokkur. Ekkert er jafn mikil fásinna. Sjálfstæðis- flokkurinn er aðeins einn í þessu landi og hefur þá sérstöðu, að leggja til grundvallar þetta tvennt: Hann vill gæta öryggis landsins út á við og deila ábyrgð á vömum fijálsra þjóða með þeim og vera jafningi þeirra. Inn á við leggur hann áherslu á frelsi einstaklinganna til framtaks og þroska og vill gæta efnahagslegs sjálfstæðis þjóðarinn- ar. Þetta eru ekki mörg orð, en innihaid þeirra er mikið og á alltaf jafnbrýnt erindi til þjóðarinnar. Höfundur skipar 1. sæti i fram■ boðslista Sjálfstæðisfiokks í Norðurlandskjördæmi eystra. Morgunblaðið/Þorkell Gestur Guðmundsson undirbýr opnun sýningar sinnar. Sýnir í Hafnar- borg GESTUR Guðmundsson opnár í dag, 11. april, kl. 14.00 mál- verkasýningu í Hafnarborg, Strandgötu 34 í Hafnarfirði, og er þetta fjórða einkasýning hans. A sýningunni eru 10 mál- verk og um 18 teikningar. Gestur er fæddur 1956 og út- skrifaðist úr málaradeild MHI 1981. Hann hefur tekið þátt í sam- sýningum í Svíþjóð og á íslandi. Sýningin stendur til 26. apríl og em flest verkin til sölu. Háskólinn XXII: Húsakostur háskólans eftírÞórð Kristínsson Við upphaf þessara skrifa um Háskóla Islands, sem til hafa orð- ið að tilmælum ritstjóra Morgun- blaðsins, var þess getið að reynt yrði að varpa svolitlu ljósi á vett- vang háskólans og vinnuna sem þar fer fram. í tuttugu og einum pistli hefur verið skyggnst um í níu deildum skólans og fjölmörg- um stofnunum hans, sem sam- anlagt em um þijátíu talsins, vikið að stúdentafjölda og kennara, kennslugreinum og rannsóknum. Inn í myndina hefur slæðst fróð- leikur um ýmislegt fleira sem við kemur háskólastarfinu, þar á meðal er húsnæðið sem skotið hefur upp kolli hingað og þangað í pistlunum. Býsna margt hefur þó orðið útundan sem verðugt er að segja deili á, eins og t.a.m. málefni stúdenta, félags- og stjórnmál þeirra og starfsemi fag- félaga sem mörg hver em grósku- mikil, gangast fyrir samkomum, fundum og fyrirlestmm og gefa út blöð; en við háskólann starfa ein þijátíu slík félög. En nú verð- ur botn sleginn í skrifíð með svolítilli umfjöllun í þremur pistl- um um húsnæði Háskólans og Happdrætti Háskóla íslands, en þetta tvennt er samofíð og verður ekki aðskilið. Fram hefur komið að á nám- skrá háskólans em u.þ.b. 1000 námskeið, um 4500 nemendur skráðir til náms og um 30 rann- sóknarstofur tengdar skólanum. Fastar kennarastöður em um 270, við stofnanir skólans starfa um 90 sérfræðingar og styrkþegar og um 45 manns við stjómun og skrifstofustörf; samtals um 400 starfsmenn og em stundakennar- ar þar ekki taldir, né heldur skrifstofufólk á sjálfstæðum stofnunum. Engan þarf að undra að Há- skóli íslands þurfí nokkum húsakost og önnur gögn og gæði til að halda megi uppi hinni fjöl- þættu starfsemi sem þar fer fram og bundin er í lögum. Háskólanum er skylt að taka við öllum þeim er hafa stúdentspróf og æskja þar inngöngu. I lögum um Háskóla íslands nr. 78, 22. ágúst 1979 í IV. kafla 36. grein, segir svo: „Hver sá sem staðist hefur fulln- aðarpróf frá íslenskum skola, sem heimild hefur til að brautskrá stúdenta, á rétt á að vera skrásett- ur háskólaborgari, gegn þvi að greiða skrásetningargjald." Á Is- landi em nú a.m.k. 17 skólar sem hafa þessa heimild og útskrifa þeir giska 1600 nýstúdenta á ári. Rétturinn til náms í háskólanum er þó ekki alveg óbundinn, því heimilt er að takmarka fjölda nemenda á fjómm námsbrautum skólans, læknisfræði, tannlækn- ingum, sjúkraþjálfun og lyija- fræði lyfsala. Hinsvegar benda almennu ákvæðin skýlaust til þess að vilji löggjafans sé sá að allir þeir sem hafa hæfílegan undir- búning eigi kost á háskólanámi. En lög em einungis tilkynning um tiltekna breytni eða fram- kvæmd; þau em m.ö.o. til eftir- breytni en ekki breyting sjálf. Háskólinn reynir eftir bestu getu að framfylgja lögunum, en að- stæður sem hann ræður ekki við setja honum nokkrar skorður, fer féleysi þar fremst í flokki og sést vel ef húsnæðið er skoðað. Frá árinu 1911 og næstu 29 árin var háskólinn á neðri hæð Alþingishússins, en í dag er ekki ólíklegt að þegar háskólinn er nefndur detti fólki fyrst í hug aðalbygging skólans sunnan Hringbrautar og austan Suður- götu, enda myndar sú bygging einskonar miðpunkt á háskólalóð- inni og er gjaman notuð sem samnefnari skólans. Og reyndar er það ekki að ósekju, því Aðal- byggingin er enn í dag einhver veglegasta bygging háskólans þótt byggð sé fyrir 47 ámm. Frá upphafí höfðu háskóla- kennarar sífellt verið að vekja athygli á slæmum húsnæðisað- stæðum skólans og gera tillögur um úrbætur. Ýmsar hugmyndir vom uppi, t.a.m. um byggingar fyrir Alþingi og háskólastúdenta á lóð þeirri bakatil við Alþingis- húsið þar sem stóð Góðtemplara- húsið, en nú er stæði fyrir farskjóta þingmanna. Upphaflega var háskólabyggingu hinsvegar ætlaður staður á Amarhóli, en ekkert varð af því. Þetta var í hámælum árið 1917. En stiklum nú á stóm. Árið 1920 skoraði háskólaráð á ríkisstjóm og Alþingi að tryggja háskólanum lóð undir háskóla- byggingu og stúdentaheimili, án árangurs. Árið 1925 tjáði Magnús Jónsson, lagaprófessor, sem þá var rektor, stjómvöldum að til vandræða horfði um húsnæði skólans, en engar heimildir era nú til um viðbrögð. Árið 1928 sagði þáverandi rektor, Ágúst H. Bjamason, í setningarræðu sinni, eftir að hafa lýst húsnæði skól- ans: „Svo er nú húsrúm það, sem háskólinn ræður yfír, ónógt og „Fráárinu 1911 og næstu 29 árin var há- skólinn á neðri hæð Alþingishússins, en í dag er ekki ólíklegt að þegar háskólinn er nefndur detti fólki fyrst í hug aðalbygg- ing skólans sunnan Hringbrautar og aust- an Suðurgötu, enda myndar sú bygging einskonar miðpunkt á háskólalóðinni og er gjarnan notuð sem samnefnari skólans.“ takmarkað á allar lundir, að mað- ur tali ekki um það, að ekki er unnt að halda lengur sæmilega vel sóttan fyrirlestur án þess að flýja eitthvað út í bæ með hann.“ En úr þessu tók málið ögn að hreyfast, einkum fyrir forgöngu Jónasar Jónssonar þáverandi menntamálaráðherra og háskóla- kennaranna sem létu ekki þreyt- ast í málinu. í bréfí til háskólaráðs í ársbyijun 1929 nefndi Jónas lóð fyrir háskólann frá Skólavörðut- orgi suður að Hringbraut. Háskólaráð sneri sér til bæjar- stjómarinnar og áleit fasteigna- nefnd bæjarins rétt að ætla skólanum svæðið milli Skólavörð- ustígs og Barónsstígs, en gerði hins vegar ekki tillögu um af- hendingu. Á Alþingi 1930 bar mennta- málaráðherra fram fmmvarp til laga um byggingu fyrir Háskóla Islands. Skyldi ríkisstjórninni heimilað að reisa skólahús á ámn- um 1930—1940 á lóðinni við Skólavörðutorg. Skilyrði fyrir því að ríkissjóður legði fram fé til byggingarinnar var að Reykjavík- urbær gæfí háskólanum til sérkvaðalausra afnota um aldur og ævi landssneið frá Skólavörðu- torgi milli lóðar Landspítalans og væntanlegs íþróttavallar niður að Hringbraut og 5 hektara af landi neðanvert við Hringbraut í áfram- haldi af byggingarlóð háskólans. Þingnefndin sem fékk málið til meðferðar vísaði því til umsagnar borgarstjórans í Reykjavík, Knud Zimsens. í umsagnarbréfí sínu til menntamálanefndar efri deildar Alþingis, dags. 29. mars 1930, segir hann lóðina óhentuga fyrir háskólann auk þess sem hún sé ætluð til annarra nota. En hann benti aftur á móti á svæðið austan við Suðurgötu, gegnt íþrtotavell- inum á Melunum, en sunnan við Hringbraut: „Þar hagar svo til, að Reykjavíkurbær á land allt næst fyrir austan Suðurgötu, en þar fyrir neðan taka við erfðafest- ulönd, kálgarðar og tún. Á þessum stað er mögulegt að ætla jafnvel allt að 16,5 hektara stórt sam- fellt land til þarfa háskólans, og megnið af því, sem er ræktað land, þyrfti ekki að kaupa fyrr en háskólinn hefði þess þörf. Aðal- byggingin mundi verða reist efst í landinu, nálægt Suðurgötu, á lóð bæjarins, og öll lóðin yrði ein heild, suður og austur frá bygg- ingunni." Skemmst er frá að segja að þetta gekk eftir, næstum því. Framvarpið var samþykkt á þing- inu 1932. En engu fé var veitt til háskólabyggingar næstu árin. Þá varð Happdrætti Háskóla ís- lands til. Víkjum að því næst. Höfundur er prófstjóri viðHi- skóla íslands.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.