Morgunblaðið - 11.04.1987, Síða 30

Morgunblaðið - 11.04.1987, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. APRÍL 1987 Könnun Hagvangs hf. á neyslu lambakjöts: Rúmlega 52% hafa dregið úr neyslu RÚMLEGA 52% þátttakenda í könnun sem Hagvangur hf. framkvæmdi fyrir Markaðs- nefnd landbúnaðarins um neyslu á lambakjöti, sögðust hafa minnkað innkaup á lambakjöti til heimilisins frá því sem var fyrir þremur árum. Tæplega 59% þessara sömu aðila töldu að verð- ið þyrfti að lækka til að auka neysluna. Um 88% töldu lamba- kjöt vera gott á bragðið. Könnunin náði til allra lands- manna og var úrtakið 1000 manns. Þar af svöruðu 779 ein- staklingar eða 77,9% á aldrinum 18 tíl 67 ára. Spurt var um þijá meginþætti, innkaup og neyslu, verðlagningu og gæði, og al- mennt viðhorf til landbúnaðar. Af niðurstöðum könnunarinnar má ráða að samdráttur í neyslu lambakjöts dreifist jafnt yfír alla aldurshópa, en flestir sem dregið hafa úr neyslunni búa á höfuð- borgarsvæðinu. Meirihluti heimil- anna, eða 71%, hafði keypt lambakjöt á hálfum mánuði fyrir könnunina. Tæp 42% kaupa lamba- kjöt í helgarmatinn eingöngu en um 45% kaupa lambakjöt bæði í helgar- og hversdagsmat. Tæplega 60% þáttakenda treystu sér ekki til að nefna rétt verð á lambalæri, þrátt fyrir að verð væri talið meginástæðan fyrir minnkandi neyslu. Meirihluti eða um 58% er fylgjandi áframhaldandi niður- greiðslum, en 26% álitu að fram- leiðslukostnaður ætti að koma fram í hækkuðu vöruverði. Um 36% álitu að meginástæðan fyrir aukinni birgðasöfnun á lamba- kjöti væri að kjötið væri of dýrt en um 21% nefndi offramleiðslu eða skipulagsleysi sem meginástæðu. Þegar spurt var um hvemig ætti að minnka birgðimar töldu um 32% að leggja bæri áherslu á lækkað verð. í þeim hluta könnunarinnar þar sem fjallað er um almennt viðhorf til landbúnaðar, kemur fram að um helmingur þeirra sem tóku afstöðu, töldu að efla bæri sjávarútveg og iðnað á komandi árum. Rúm 11% álitu að þróa ætti landbúnað og efla. Hvað almenna umræðu um málefni landbúnaðarins varðaði töldu rúm 43% hana hafa verið fremur neikvæða en 33,5% frekar jákvæða. Af þeim sem töldu um- ræðuna hafa verið neikvæða voru aðeins fleiri af landsbyggðinni eða tæplega 60% á móti 50% í þéttbýli. Um eitt hundrað manns sóttu funds Sjálfstæðisfélags Seltjamamess og hlýddu á ræður Ólafs G. Einars- sonar og Víglundar Þorsteinssonar. Fjölmenni á fundi hjá Sjálfstæðisfólki Sjálfstæðisfélag Seltirninga hélt almennan fund á miðviku- dagskvöld í félagsheimili Selt- jarnaraess við Suðurströnd. Á fundinum héldu ræður þeir Ólafur G. Einarsson og Víglundur Þorsteinsson, frambjóðendur Sjálf- stæðisflokksins í Reykjaneskjör- dæmi. Fundurinn var vel sóttur og taldist mönnum svo til að hátt í eitt hundrað manns hafí verið í fé- lagsheimilinu. Morgunblaðið/Matthías „Gamla bakaríið", sem varð til þess að meirihluti bæjarstjómar Siglu- fjarðar brast í fyrradag. Bæjarstjórn Siglufjarðar: Gamli miðbærinn: Baráttusamkoma á Hressó Áhugafólk um miðbæ Reykjavíkur, þar á meðal stjórnir allra íbúasamtaka gamla bæjarins efna til baráttuskemmtunar á Hressingarskálanum í dag kl. 15. Af þvi tilefni hafa samtökin gefið út plakat með kjörorðunum „Gefum gömlum húsum tæki- færi“. Á því em myndir af tveimur gömlum húsum í miðbænum fyrr og nú. Morgunblaðið/Emilía Víglundur Þorsteinsson, framkvæmdastjóri, í ræðustól á fundi Sjálf- stæðisfélags Seltirainga á miðvikudag. Lengst til vinstri er Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstjóri, sem var fundarstjóri, og hinum megin við Víglund era þau Sigurveig Lúðviksdóttir, formaður Sjálfstæðisfé- lagsins, og Krisfján Snædal, fundarritari. Kjarvalsstaðir: Bragi í Vestursal BRAGI Ásgeirsson, listmálari, sýnir nú verk sín í Vestursal Kjarvalsstaða. Sýninguna kallar Bragi „Hug- hrif“, enda kveðst listamaðurinn hafa málað flestar myndimar eft- ir þeim hughrifum sem hann hafí orðið fyrir á síðustu tveimur árum og því séu myndimar margvísleg- ar. Á sýningunni em 88 olíumynd- ir og er þetta níunda stóra einkasýningin sem Bragi heldur. Hann hefur auk þess haldið ijölda smærri sýninga á grafíkverkum og olíumyndum. Sýning Braga er opin daglega frá kl. 14-22 og stendur hún til 20. aprfl. Vinstri meirihlutinn féll á „gamla bakaríinuu Siglufirði. ^ ALÞÝÐUFLOKKURINN á Siglu- firði hefur slitið meirihlutasam- starfi við Alþýðubandalagið í bæjarstjórainni. Ágreiningur kom upp á milli meirihlutaflokk- anna um kaup á 30-40 ára gömlu húsi í bænum sem gengur undir nafninu „gamla bakaríið". Á bæjarstjómarfundi á fímmtu- daginn vom kaupin á húsinu samþykkt með fjómm atkvæðum minnihlutans. Þrír fulltrúar Al- þýðuflokks vom á móti kaupunum og tveir fulltrúar Alþýðubandalags sátu hjá í atkvæðagreiðslunni. ísak J. Ólafsson, bæjarstjóri á Siglu- flrði, sagði í samtali við Morgun- blaðið að Alþýðuflokkurinn hefði talið gmndvöllinn fyrir samstarfí við Alþýðubandalagið brostin þar sem fulltrúar Alþýðubandalagsins hefðu í atkvæðagreiðslunni gengið þvert á móti vilja samstarfsflokks- ins. Fulltrúar Alþýðuflokksins töldu bæjarsjóði ekki fært að hefja bygg- ingu leiguíbúða á þessu ári. vegna annarra brýnni verkefna svo sem átaks í gatnagerð, að sögn ísaks. Á fundi bæjarstjómar þann 9. október sl. samþykkti bæjarstjómin kaup á húsinu, svo fremi sem sam- þykki Húsnæðisstofnunar ríkisins lægi fyrir og féllu þá atkvæði á sama hátt og nú. Eftir samþykki stofnunarinnar gekk ísak frá kaup- unum við Trésmíðafélagið Bút hf., um kaup á átta fullfrágengnum leiguíbúðum í „gamla bakaríinu" og var sá samningur til staðfesting- ar hjá bæjarstjóm sl. fímmtudag þegar upp úr sauð. Samningurinn hljóðar upp á tæpar 23 millj. kr. Fulltrúar Alþýðuflokks í bæjar- stjóm vom Kristján Möller, Olöf Kristjánsdóttir og Regína Guð- laugsdóttir. Fyrir hönd Alþýðu- bandalags í bæjarstjóm sátu þau ÍSLENSKI markaðsklúbburinn efnir nú til samkeppni um athygl- isverðustu auglýsingar síðasta árs í samráði við Samband íslenskra auglýsingastofa. Til- gangur keppninar er að vekja athygli á vel gerðum auglýsing- um og veita höfundum þeirra viðurkenningu. Skilafrestur er til hádegis 12. maí, en verðlaun verða afhent í hófi þann 20. maí. Samkeppnin var kynnt á aðal- fundi markaðsklúbbsins fyrir skömmu. Þar kom fram að sam- keppnin verði opin öllum sem hafa gerð og dreifíngu auglýsinga að atvinnu. Á það við jafnt við um Sigurður Hlöðversson og Brynja Svavarsdóttir. Minnihlutann skip- uðu þrír fulltrúar Sjálfstæðisflokks og einn fulltrúi Framsóknarflokks. Ekki er farið að ræða um nýjan meirihluta í bæjarstjóm Siglufjarð- auglýsingastofur og auglýsinga- gerðamenn innan og utan fyrir- tækja. Skilyrði fyrir þáttöku er að auglýsingin sé gerð af íslenskum aðila og hafí birst í fyrsta sinn árið 1986. Verðlaun verða veitt í átta flokk- um; fyrir auglýsingar í útvarpi, tímaritum, dagblöðum, kvikmyndir, dreifirit og veggspjöld. Þá verða veitt ein verðlaun fyrir óvenju- legustu auglýsingu ársins. Póstur og Sími, Ríkisútvarpið, Bylgjan, Morgunblaðið, Fijálst Framtak, Prentsmiðjjan Oddi og Verslunarráð íslands veita verð- launin sitt í hveijum flokki. Matthías Samkeppni um athyglisverðustu auglýsingarnar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.