Morgunblaðið - 11.04.1987, Side 66

Morgunblaðið - 11.04.1987, Side 66
66 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. APRÍL 1987 t Maðurinn minn, SVEINBJÖRN EGILSSON, Óðinsgötu 2, lést í gær. 10. apríl í Borgarspítalanum. Rannveig Helgadóttir. t GUÐMUNDUR SVEINSSON netagerðarmeistari frá Góustöðum, Engjavegi 24, (safirði, lést að morgni 9. apríl á Landakotsspítala. Jaröarförin auglýst síðar. Bjarney Ólafsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Móðir okkar, GUÐNÝ GESTSDÓTTIR frá Hamri, andaðist á Hrafnistu fimmtudaginn 9. apríl. Börnln. t Ástkær eiginmaður minn, EINAR PÁLSSON, Leifsgötu 3, andaðist í Borgarspítalanum 9. apríl sl. Gyða Guðmundsdóttir. t ÁSTA ÞORBJÖRNSDÓTTIR, Mímisvegi 2, andaöist á Elliheimilinu Grund 8. apríl. Hafsteinn Jónsson og systkini. t Faöir okkar, HANS ALBERT SVANE, fyrrum lyfsali í Stykkishólmi og á ísafirði, lést á heimili sínu í Nykpbing S. Danmörku 9. apríl sl. Útför hans veröur gerð frá Marsdal þriðjudaginn 14. apríl. Guya Svane Nissen, Hans Svane jr. t ÁRNI JÓNSSON frá Hnifsdal andaðist á Sólvangi, Hafnarfirði, 9. apríl sl. Jarðarförin fer fram frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði miðvikudaginn 15. apríl nk. kl. 15.00. Rakel Árnadóttir, Bragi Guðmundsson, Hörður Árnason, Sigríður Ágústsdóttir, Aðalheiður Árnadóttir. t Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaöir, HJÁLMTÝR BJARG HALLMUNDSSON, Ljósvallagötu 28, sem lést í Landspítalanum aðfaranótt 8. apríl verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miövikudaginn 15. apríl kl. 10.30. Unnur Guðmundsdóttir, Guðmundur Ingi Hjálmtýsson, Gíslína Rannveig Hallgrímsdóttir, Stefanía Halla Hjálmtýsdóttir, Þorkell Guönason. t Systir okkar og mágkona, SIGRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR, Sólvallagötu 38, Keflavfk, sem lóst í Sjúkrahúsi Keflavíkur 6. apríl, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 11. apríl kl. 14.00. Guðrún Sigurðardóttir, Þórólfur Sæmundsson, Ásgeir Sigurðsson, Guðrún Ármannsdóttir, Sólveig Sigurðardóttir, Vilborg Eiríksdóttir. Minning: Síra Benjamín Krist- jánsson fyrrv. prófastur Fæddur ll.júní 1901 Dáinn 3. apríl 1987 Á menntaskólaárum mínum á Akureyri leigði ég lengst af í Munkaþverárstræti 3, fyrst hjá sæmdarhjónunum Siguijóni Sumar- liðasyni fyrrverandi pósti og Guðrúnu Jóhannsdóttur konu hans óg síðar hjá fóstursyni þeirra, Vigni Guðmundssyni og Onnu Pálu Bjar- man konu hans. Þau Siguijón og Guðrún kenndu sig gjaman við Áslaugsstaði í Glæsibæjarhreppi, þar sem þau bjuggu um langt árabil. Ég tengd- ist traustum órofa tryggðarböndum við þessi aldurhnignu hjón, sem reyndust mér jafnan sem bestu for- eldrar. Sérstaklega varð samband okkar Guðrúnar náið og innilegt. Hún var stórgáfuð kona og ein sú göfugasta og hjartahreinasta sál, sem ég hefi kynnst á lífsleiðinni. Oft sagt ég hjá henni inni í stofu eða eldhúsi tímunum saman, ræddi við hana og nam af vörum hennar þá lífsspeki, sem hefir lýst mér til þessa dags. Eitthvert hugboð hafði hún um, að hugur minn stefndi til guðfræði- náms að loknu stúdentsprófi. Því kom það eins og af sjálfu sér, að trúmálin bar oft á góma, þegar við ræddum saman. Hún hafði sínar ákveðnu skoðanir á kenningum kirkjunnar og mat þjóna hennar eftir þeim boðskap, sem þeir fluttu. Ég man, að hún nefndi ýmis nöfn þeirra presta, sem hæst gnæfðu að hennar mati. Einn þeirra, sem hún nefndi hvað oftast, var síra Benja- mín Kristjánsson, sem um þær mundir var prestur á Syðra-Lauga- landi í Eyjafirði. Um hann viðhafði hún mörg og sterk orð. M.a. man ég, að einu sinni sagði hún, að hann væri „stórgáfað göfugmenni“. Aldrei sá ég þennan merkisklerk meðan ég dvaldist nyrðra. En nafn- ið hans greyptist fast í vitund mína. Ég vissi, að hún Guðrún mín bles- suð hlaut að hafa nokkuð til síns máls. Á staðhæfíngum hennar reyndist mér alltaf óhætt að byggja. Og nú er síra Benjamín Krist- jánsson látinn, eftir langan, starf- saman og viðburðaríkan ævidag. Hann fæddist hinn 11. júní árið 1901 að Ytri-Tjömum í Öngulstaða- hreppi í Eyjafirði. Foreldrar hans voru hjónin Kristján Helgi Benj- amínsson bóndi og hreppstjóri á Ytri-Tjömum og Fanney Friðriks- dóttir frá Brekku í Kaupangssveit. Hann var næstelstur 12 systkina, sem öll komust til fullorðinsára. Tvær systur eru látnar og eru því 9 systkinanna enn á lífi. Meðal þeirra er síra Bjartmar, sem lengi var prestur á Mælifelli í Skaga- firði, en tók við Grundarþingum af bróður sínum 1967. Síra Benjamín var snemma hneigður til bóklegra fræða og því varð það að ráði að hann tók þá ákvörðun að stefna að stúdents- prófi. Því lauk hann sem utanskóla- nemandi við Menntaskólann í Reykjavík vorið 1924. Embættis- prófi í guðfræði við Háskóla íslands lauk hann svo vorið 1928. Ekki var þó þar um samfellt nám að ræða, því að veturinn 1925—1926 var hann í námsdvöl við Kaupmanna- hafnarháskóla. Að afloknu embættisprófí lá svo leiðin til Kanada. Þar gerðist hann prestur svonefnds Sambandssafn- aðar (The First Federated Church) í Winnipeg. Þeim söfnuði þjónaði hann til 31. júlí 1932. Island kallaði — og aftur var haldið heim á gamla Frón. Samsum- ars fékk hann veitingu fyrir Grundarþingum og var vígður 13. nóvember 1932. Hann sat á Ytri- Tjömum á árunum 1932—1935, en fluttist þá að Syðra-Laugalandi, sem gert var að prestssetri Grund- arþinga með lögum um þær mundir. Prófastur í Eyjafjarðarprófasts- dæmi var hann frá 1964—1967. Auk prests- og prófastsstarfa lagði síra Benjamín víða gjörva hönd á plóginn. M.a. kenndi hann við guðfræðideild Háskóla íslands haustmisserið 1942 í forföllum pró- fessors Magnúsar Jónssonar. Þá hafði hann með höndum kennslu í bóklegum fræðum við Húsmæðra- skólann á Laugalandi frá 1937 til 1967. Fjölmörgum trúnaðarstörfum gegndi hann um lengri eða skemmri tíma bæði í heimabyggð sinni og á kirkjulegum vettvangi, sem hér yrði of langt mál upp að telja. Þá gerði hann talsvert af því að sækja kirkju- legar ráðstefnur og þing á erlendum vettvangi, eins og augljóslega má sjá á greinum hans í Kirkjuritinu þar að lútandi. Hann var lifandi í starfí, fylgdist af brennandi áhuga með nýjum stefnum og straumum í kirkjunni og sýndi það oft bæði í orði og verki. Hann var góður pré- dikari og vandaði mjög ræður sínar. Tækifærisræður hans þóttu margar afburða snjallar. Ég hygg t.d. að fáir, sem heyrðu, gleymi ræðunni, sem hann flutti í lok prestastefnu á heimili Ásmundar biskups Guð- mundssonar, vorið sem hann hlaut biskupsvígslu. Hann var sískrifandi í blöð og tímarit og alltaf var einhver veigur í því, sem frá penna hans kom. Hann gat verið hvassyrtur og harð- orður, ef því var að skipta, en oftast stýrði þó mannúðin, mildin og löng- unin til þess að fræða lesendur sína, penna hans. Allmargar bækur og bæklingar komu út eftir hann. En höfuðrit hans eru þó íslenskir guð- fræðingar I, Saga Prestaskólans, t Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns mins, föður okkar, tengdaföður, afa og bróður, GÍSLA ODDSSONAR, Ljósheimum 20, Reykjavfk. Lára Sæmundsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og systur hins látna. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúö og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, SIGURÐAR BETÚELSSONAR, Langholtsvegi 156. Guðrún Auðunsdóttir, Andrés B. Sigurðsson, Erla Hafliðadóttir, Svandís Sigurðardóttir, Marta Sigurðardóttir, Auðun Svavar Sigurðsson, Anna María Siguröardóttir, Esther Sigurðardóttir, Elisa Sigurðardóttir, Elfas Sigurðsson, Jón Eirfksson, Lárus Einarsson, Karl. S. Thorlacius, Guðrún Guðmundsdóttir og barnabörn. Rvk. 1947 og Vestur-íslenskar ævi- skrár 1,—4. bindi, Ak. 1961—1972. Þá má geta þess, að á Kanadaárun- um var hann um skeið meðritstjóri Heimskringlu. Sr. Benjamín var mikill ham- ingjumaður í einkalífi sínu. Hann kvæntist hinn 26. júní árið 1928 Jónínu Bjömsdóttur frá Karlsstöð- um í Fljótum í Skagafírði, dóttur Bjöms Jónssonar bónda og skip- stjóra þar. Hún var mikilhæf kona, bæði að gáfum og atgjörvi öllu. Reyndist hún manni sínum traust- ur, hjartfólginn og trúfastur lífsförunautur. Þau eignuðust engin böm. En stjúpsonur síra Benjamíns er Bjöm Ingvarsson yfirborgardóm- ari í Reykjavík, kvæntur Margréti Þorgeirsdóttur. Þau eiga þijá syni. Þá ólu þau hjónin upp fósturdóttur frá 5 ára aldri, Þóm Björk Kristins- dóttur hjúkrunarfræðing og húsmóður á Akranesi. Maður henn- ar er Jósef Þorgeirsson, fram- kvæmdastjóri. Þau eiga líka þijá syni. Síra Benjamín hætti prestskap um áramót 1967—’68. Fluttu þau hjónin þá til Reykjavíkur og bjuggu þar á meðan bæði lifðu. Frú Jónína andaðist 9. des. 1977 og varð hún manni sínum mikill harmdauði. Enda hafði hann þá sjálfur verið vanheill um nokkurra ára skeið. Fyrst um sinn dvaldist hann áfram í íbúð sinni í Reykjavík milli þess sem hann var á Ákranesi hjá Þóm dóttur sinni og fjölskyldu hennar. En þangað lágu löngum gagnvegir. Árið 1979 fór síra Benjamín svo norður að Laugalandi til síra Bjartmars bróður síns og Hrefnu Magnúsdóttir konu hans. Þar dvald- ist hann að mestu leyti um þriggja ára skeið og naut þar dýrmætrar hlýju og aðhlynningar. Frá Lauga- landi fór hann svo á Kristnesspítala í Eyjafirði og dvaldist þar upp frá því. Hann andaðist þar hinn 3. þessa mánaðar eftir aðeins hálfs mánaðar legu. Hann naut þeirrar hamingju, að fósturdóttirin, sem hann unni svo mjög, hjúkraði honum síðustu stundimar og sat við sjúkrabeðinn þegar hinsta stundin rann upp og heimförin mikla og margþreyða var hafin. Ég kynntist síra Benjamín ekki fyrr en á síðustu prestskaparámm hans. Hafði reyndar veitt honum eftirtekt fyrr á prestafundum. Þar skar hann sig talsvert úr að mörgu leyti. Hann var kvikur í hreyfíngum, léttur í spori, með amfrán augu, þar sem þó var gmnnt á glettnis- bliki. Þá var hann alltaf klæddur ljósum fötum, gagnstætt þeim kol- svarta klæðnaði, sem einkenndi mína ágætu stétt fram á síðustu ár. Síðar urðu kynni okkar nánari. Leið mín lá talsvert oft, en þó of sjaldan, á heimili þeirra hjóna í Reykjavík. Þá rejmdi ég hlýjuna, Blómabúðin Hótel Sögu sími12013 Blóm og skreytingar gjafavörur heimsendingar- þjónusta

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.