Morgunblaðið - 13.10.1987, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1987
27
"Vi6 keyptum
spariskírteini rikis-
sjóðs vegna þess
ad þau eru tekju-
og eignaskattsfrjáls
- og svo getum við
tvöfaldað höfuð-
stólinn á tíu árum"
Hafðu það í huga, að fyrir utan góða
raunvexti eru ýmis önnur atriði, sem
skipta miklu máli þegar þú ávaxtar
sparifé þitt.
Auk þess að vera tekju- og eigna-
skattsfrjáls bera spariskírteini ríkis-
sjóðs ekkert stimpilgjald.
Þótt láns- eða binditíminn sé ekki
útrunninn getur þú selt spariskírteini
ríkissjóðs í gegnum Verðbréfaþing
íslands. Þannig getur þú losað fé þitt
með stuttum fyrirvara.
"Háir vextir og
stuttur lánstími
réðu úrslitum þegar
ég fjárfesti í
spariskírteinum
ríkissjóðs"
Með nýjum spariskírteinum ríkissjóðs
bjóðast þér nú enn betri leiðir en áður
til að ávaxta sparifé þitt á öruggan og
arðbæran hátt.
Þú getur valið um spariskírteini sem
bera 7,2% til 8,5% ársvexti umfram
verðtryggingu og lánstíminn er tvö,
fjögur eða sex ár.
"Mín reynsla er sú
að öruggt og traust
sparnaðarform sé
besta f járfestingin"
Spariskírteini ríkissjóðs eru ein
öruggasta fjárfestingin, sem völ er á í
dag. Þú finnur ekki traustari lántaka en
ríkissjóð því að baki honum stendur öll
þjóðin. Spariskírteini ríkissjóðs eru því
traust fjárfesting og þú tekur enga
áhættu með sparifé þitt.
"Égfór í bankann
minn og f járfesti í
þeim skírteinum
sem henta mér best.
Þægilegra getur
það varla verið"
Verðgildi spariskírteini ríkissjóðs er
allt frá 5.000 kr. og því ættu allir að
geta keypt skírteini.
Þú færð spariskírteini ríkissjóðs í
Seðlabanka íslands og hjá löggiltum
verðbréfasölum, sem m.a. eru viðskipta-
bankarnir, ýmsir sparisjóðir, pósthús
um land allt og aðrir verðbréfamiðlarar.
RÍKISSJÓÐUR ÍSLANDS
Hér getur þú séð hvað
gerir spariskírteini
ríkissjóds ad jafn góðri
fjárfestingu og raun ber
• - m
GOH FÓLK / SÍA