Morgunblaðið - 13.10.1987, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1987
55
Ríkið tilbúið að yfirtaka
skuldir Sjóefnavinnslunnar
Könnunarviðræður eru hafnar
milli Hitaveitu Suðurnesja og
nokkurra fyrirtækja um kaup á
hlut ríkisins í Sjóefnavinnslunni
hf. Fjármálaráðherra og iðnað-
arráðherra eru sammála um að
ríkið eigi að draga sig út úr
rekstri félagsins. Yfirtæki ríkis-
sjóður skuldir að fjárhæð 550
milljónir króna. Hið opinbera
gerir sér vonir um að endur-
heimta 250 milljónir af þessari
upphæð fram að aldamótum.
Lyfjafyrirtækin Pharmaco og
Delta eru í hópi þeirra sem nefndir
hafa verið þátttakendur í viðræðun-
um.
Sjóefnavinnslan hefur verið rekin
með miklum halla frá upphafi.
Ríkissjóður á 84% hlutafjár, sveitar-
félög á Suðurnesjum 10% og 500
smærri hluthafar 6%.
Árið 1985 fór fram endurskipu-
lagning á framkvæmdastjórn
verksmiðjunnar. Á grundvelli arð-
semisáætlunar var ákveðið að
ráðast í framleiðslu á grófu salti,
kolsýru og þurrís. í byrjun ársins
hófst sala á kolsýrunni en þurrísinn
kom á markað í vor. Þessa dagana
er verið að auka saltframleiðsluna
úr 1000 tonnum í 7000 tonn á ári.
Að sögn Magnúsar Magnússonar
framkvæmdastjóra Sjóefnavinnsl-
unar benda líkur til að framleiðsla
þessara vörutegunda geti skilað
hagnaði á komandi árum. Hinsveg-
ar væri loku fýrir það skotið að
félagið geti greitt niður þær miklu
skuldir sem á því hvíla.
Sú hugmynd hefur verið lögð
fram af hlutaðeigandi ráðuneytum
að ríkissjóður létti öllum skuldum
af félaginu. Jafnhliða yrði hlutafé
fyrirtækisins aukið um 50 milljónir
króna.
Ríkið myndi setja nýjum eigend-
um þau skilyrði að lagt verði fram
verðtryggt skuldabréf að fjárhæð
100 milljónir króna sem greiðist
með jöfnum afborgunum síðasta
áratug aldarinnar. Auk þess fengi
ríkið árlega hluta af rekstrarhagn-
aði sem greiðslu fyrir staðarkosti,
þeirra á meðal orkunytjar og mögu-
leika á framleiðslu kísils og heilsu-
salts.
Yrði gengið að þessum skilyrðum
gæti ríkið hugsanlega lækkað tapið
af verksmiðjunni í 300 milljónir
króna á verðlagi þessa árs.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Nýr snjóplógur á
Keflavíkurflugvelli
Keflavfk
Keflavíkurflugvöllur er ákaf-
lega vel búinn af snjóruðnings-
tækjum og hafa íslenskir
starfsmenn sem sjá um snjó-
hreinsun og ísvarnir fengið gott
orð fyrir að halda vellinum opn-
um, oft við hin erfiðustu skilyrði.
Þessi snjóplógur, sem stendur
nokkuð hátt uppi á hafnargarð-
inum í Njarðvík, kom með skipi
frá Bandaríkjunum og mun senn
notast í flota þeirra snjóruðn-
ingsmanna sem hafa fengið ný
tæki fyrir um 20 milljónir króna
fyrir veturinn.
—BB.